17. júní hátíð 2015

Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni - allir fánar á loft!
 
Kl. 11:00 17. júní hlaupið fer fram á íþróttavellinum á Dalvík í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS. Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu.
  
Byggðasafnið Hvoll verður opið frá kl. 11:00 - kl. 18:00. Frítt inn í tilefni dagsins.
 
Kl. 13:00 Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Menningarhúsinu. Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega og taka með sér fána og veifur.
Andlitsmálning – ókeypis andlitsmálning frá 12:00 fyrir krakka áður en skrúðganga hefst.

Kl. 13:30 Hátíðarstund í Menningarhúsinu Bergi
Ávarp fjallkonunnar
Hátíðarræða
Tónlistaratriði
Það spáir karamellurigningu í kringum Berg

Að lokinni hátíðarstund við Berg:


Hestamennska - Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta
undir börnum við Krílakot.

Leiktæki í umsjón flokksstjóra Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar í kirkjubrekku -
Sápubolti, vatnsrennibraut og fleira skemmtilegt. Tívolístemning á svæðinu.
Foreldrar athugið: það verður hægt að bleyta sig í sumum leiktækjum og því æskilegt að börnin hafi föt til skiptanna.


Hátíðarkaffi - Frjálsíþróttadeild UMFS selur hátíðarkaffi í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju
að lokinni hátíðarstund. Verð 13 ára og eldri 1.500 kr, börn 6-12 ára 500 kr. Frítt fyrir
börn 0-6 ára miðast við leikskólaaldur. Kaffið stendur til kl 17:00.

Sundlaugarfjör í íþróttamiðstöðinni/sundlaug.
Kl. 17:30 - 19:00 (allir velkomnir)
Kl. 19:00 - 21:30 (13-16 ára)
Dúndrandi tónlist og fatasund fyrir þá sem vilja! Allir velkomnir - frítt inn
Fríar pylsur og svali í boði við íþróttamiðstöðina

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ

Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar
17. júní starfshópur