17. júní dagskrá í Dalvíkurbyggð

17. júní dagskrá í Dalvíkurbyggð

Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni - allir fánar á loft!
 
Kl. 11:00 17. júní hlaupið fer fram á íþróttavellinum á Dalvík í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS. Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu.
  
Byggðasafnið Hvoll verður opið frá kl. 11:00 - kl. 18:00. Frítt inn í tilefni dagsins.
 
Kl. 13:00 Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Menningarhúsinu. Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega og taka með sér fána og veifur.
50 fyrstu sem mæta fá óvæntan glaðning.
Andlitsmálning – ókeypis andlitsmálning frá 12:30 fyrir krakka áður en skrúðganga hefst.

Kl. 13:30 Hátíðarstund í Menningarhúsinu Bergi
Ávarp fjallkonunnar
Hátíðarræða
Tónlistaratriði
Andlitsmálning – ókeypis andlitsmálning fyrir krakka
Það spáir karamellurigningu í kringum Berg

Að lokinni hátíðarstund við Berg:

Hestamennska - Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta undir börnum við Krílakot.

Mótorhjólafákar Dalvíkurbyggðar - hittast á planinu norðanmegin við Safnaðarheimilið og taka einn hring í kringum bæinn. Bæjarbúum gefst svo kostur á að skoða hjólin að því loknu.

  Leiktæki í umsjón flokksstjóra Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar í kirkjubrekku -
Sápubolti, vatnsrennibraut og fleira skemmtilegt. Gamla tívolístemningin endurvakin.
Foreldrar athugið: það verður hægt að bleyta sig í sumum leiktækjum og því æskilegt að börnin hafi föt til skiptanna.

Hátíðarkaffi - Barna– og unglingaráð knattspyrnudeildar UMFS selur hátíðarkaffi í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju að lokinni hátíðarstund. Verð 13 ára og eldri 1.500 kr, börn 6 - 12 ára 500 kr. Frítt fyrir börn 0—6 ára miðast við leikskólaaldur. Kaffið stendur til kl 17:00.

 
Kl. 18:30 — 21:00
Sundlaugarfjör í íþróttamiðstöðinni/sundlaug. Aron Óskars, dúndrandi tónlist og fatasund fyrir þá sem vilja! Allir velkomnir - frítt inn

Fríar pylsur og svali í boði við íþróttamiðstöðina

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ

ÍÞRÓTTA– OG ÆSKULÝÐSRÁÐ DALVÍKURBYGGÐAR
17. JÚNÍ STARFSHÓPUR