Athafnasvæði við Sandskeið
Skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag
Dalvíkurbyggð hefur hafið vinnu við deiliskipulag athafnasvæðis við Sandskeið.
Nú liggur fyrir skipulagslýsing þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hefur við skipulagsvinnuna, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað.
Lýsinguna má sjá hér .
Lýsinguna má einnig nálgast í afgreiðslu á 1.hæð í ráðhúsi og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is undir máli nr. 1569/2025.
Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér skipulagslýsinguna og senda inn ábendingar, annað hvort með tölvupósti á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til framkvæmdasviðs í Ráðhúsi Dalvíkur eða í gegnum Skipulagsgátt.
Frestur til að senda inn ábendingar er til 23.desember nk.
Skipulagsfulltrúi