Ávarp sveitarstjóra í afmæliskaffi Dalvíkurbyggðar
Kæru gestir, verið velkomin á 20 ára afmælisfagnað Dalvíkurbyggðar en þann 7. júní síðastliðinn voru liðin 20 ár frá því að Dalvíkurbyggð varð til sem sveitarfélag þegar Dalvíkurbær, Árskógshreppur og Svarfaðardalshreppur runnu saman í eina stjórnsýslueiningu.
Það hefur mikið vatn runnið til sjávar…
Í tilefni 20 ára afmælis sveitarfélagsins býður Dalvíkurbyggð íbúum sínum að koma í Berg menningarhús á milli kl. 14:30-16:30 og þiggja kaffi og afmælisköku. Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri flytur stutt ávarp kl. 14:30
Nú er vinna við deiliskipulag fólkvangsins í Böggvisstaðafjalli að hefjast. Leitað er til ykkar, bæjarbúa, eftir hugmyndum, sjónarmiðum og ábendingum um nýtingu svæðisins.
Þann 4. desember sl. opnaði Skíðasvæði Dalvíkur eftir heilmikla snjókomu sem fengu allmarga til að rífa upp skóflur og snjóblásara.
„Skíðasvæðið okkar var það fyrsta sem opnaði á landinu og lýst okkur mjög vel á næstu daga og vikur segir Einar Hjörleifsson svæðisstjóri. Það er nóg af snjó og erum v…
Jólaþorpið 2018 er risið og íbúar þess fluttir inn. Íbúar jólaþorpsins eru til viðtals virka daga frá kl. 10:00-15:00 og hvetjum við alla til að kíkja við og skoða þorpið.
Byggðaráð fékk óvænta heimsókn inn á fund í morgun. Tveir jólasveinar höfðu villst óvænt til byggða og glöddu byggðaráðsmenn með nærveru sinni og færðu þeim köku að glaðningi. Eins og sjá má á myndinni þá gleðjast jafnan stórir og smáir þegar þessir góðu sveinar fara að sjást á vappi um þetta leyti.
Alla sunnudagsmorgna kemur slökkvilið Dalvíkur saman á slökkvistöðinni við Gunnarsbraut til æfinga og yfirferðar á búnaði.
Næstkomandi sunnudag, 2. des. milli kl 10:00 og 12:00 er fyrirhugað að hafa opna stöð og bjóða áhugasömum að líta inn og kynna sér starfsemi og búnað liðsins. Sérstaklega er fó…
Fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022
Á 307. fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 20. nóvember 2018 var síðari umræða um tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022.
Helstu niðurstöður eru áætlaðar eftirfarandi:
Rekstrarniðurstaða Samantekið A- og B- hluti er jákvæð um 119 m.kr. ár…
Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar er í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Akureyri og Rauða krossinn við Eyjafjörð varðandi umsóknir um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu. Um er að ræða kort sem nota má í verslunum til matarkaupa fyrir þá sem eiga lítið handa á milli. Umsóknir er hægt að nálgast á skrifstofu Dalvíkurbyggðar eða hjá stafsmönnum félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar.