Vinnuskóli Dalvíkurbyggðar 2025
Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar auglýsir laus störf nemenda vinnuskóla. Öll ungmenni sem stunda nám í grunnskólum Dalvíkurbyggðar og eru fædd á árunum 2009, 2010 og 2011 geta sótt um, einnig ef nemandi á a.m.k. annað foreldri með lögheimili í Dalvíkurbyggð.
Vinnuskólinn hefst þriðjudaginn 10. júní og mun starfa í sex vikur, eða til og með 18. júlí.
Áætlaður starfstími er eftirfarandi:
Árgangur 2009: 6 vikur. 8:30 – 15:30 - 7 klst. á dag.
Árgangur 2010: 6 vikur. 8:30 – 15:30 - 7 klst. á dag.
Árgangur 2011: 6 vikur. 8:30 – 14:00 - 5,5 klst. á dag.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí nk. Sótt er um störfin í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar með rafrænum skilríkjum.
Vinnuskólinn er fyrst og fremst skóli þar sem nemendur/starfsmenn fá að stíga sín fyrstu skref í starfi undir leiðsögn og með stuðningi flokksstjóra og eldri starfsmanna Vinnuskólans. Markmið Vinnuskólans er að undirbúa unglingana í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Lögð er áhersla á að nemendur virði samskiptareglur, sýni ástundun, vinnusemi og virðingu gagnvart starfi og umhverfi.
Kynningarfundur fyrir áhugasama nemendur og foreldra þeirra verður haldinn í Dalvíkurskóla miðvikudaginn 14. maí kl 16:00.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Viktori Daða, verkstjóra Vinnuskólans: viktor@dalvikurbyggd.is