Vinnuskóli Dalvíkurbyggðar 2026
Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar auglýsir laus störf nemenda vinnuskóla. Öll ungmenni sem stunda nám í grunnskólum Dalvíkurbyggðar og eru fædd á árunum 2010, 2011 og 2012 geta sótt um, einnig ef nemandi á a.m.k. annað foreldri með lögheimili í Dalvíkurbyggð.
Vinnuskólinn mun einnig bjóða upp á störf fyrir ungmenni fædd árin 2009 og 2008 og er hægt að sækja um þau störf í þjónustugáttinni.
Vinnuskólinn hefst mánudaginn 8. júní og mun starfa í átta til tíu vikur, mismunandi langt eftir aldri nemenda.
Áætlaður starfstími er eftirfarandi:
Árgangur 2010: 10 vikur. 8:30 – 15:30 - 7 klst. á dag.
Árgangur 2011: 10 vikur. 8:30 – 15:30 - 7 klst. á dag.
Árgangur 2012: 8 vikur. 8:30 – 14:00 - 5,5 klst. á dag.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí nk. Sótt er um störfin í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar með rafrænum skilríkjum.
Vinnuskólinn er fyrst og fremst skóli þar sem nemendur/starfsmenn fá að stíga sín fyrstu skref í starfi undir leiðsögn og með stuðningi verkstjóra, flokksstjóra og eldri starfsmanna Vinnuskólans. Markmið Vinnuskólans er að undirbúa unglingana í vinnu í öruggu umhverfi áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Lögð er áhersla á að nemendur virði samskiptareglur, sýni góða ástundun, vinnusemi og virðingu gagnvart starfi og umhverfi.
Kynningarefni frá kynningarfundi um Vinnuskólann 2026 má nálgast hér
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Guðrúnu Kristínu Björgvinsdóttur, verkstjóra Vinnuskólans: gkb@dalvikurbyggd.is