Verðtilboð óskast í rekstur á tjaldstæðinu á Dalvík.
Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í rekstur tjaldsvæðisins á Dalvík frá og með sumrinu 2026. Markmið með útboðinu er að tryggja faglegan rekstur og góða þjónustu við gesti svæðisins.
Samningur um reksturinn er til þriggja ára, frá 1. maí 2026 til 1. október 2028, með möguleika á framlengingu um eitt ár í senn að uppfylltum skilyrðum.
Tjaldsvæðið er staðsett við Skíðabraut og er í nálægð við helstu þjónustu á Dalvík, svo sem sundlaug, íþróttaaðstöðu og verslanir. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir gesti, þar á meðal salerni, sturtur, eldunaraðstaða og rafmagnstengingar fyrir ferðavagna.
Tilboðsfrestur er til og með 7. apríl 2026 og skulu tilboð berast á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is.
Áhugasömum aðilum býðst einnig að skoða svæðið í vettvangsferð 27. mars kl. 13:00.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum eða með því að hafa samband við skrifstofu Dalvíkurbyggðar.