Tilkynning vegna óheimilla inngripa í umferðaröryggisbúnað
Dalvíkurbyggð hefur orðið þess vör að átt hafi verið við hraðahindranir í hverfum sveitarfélagsins, meðal annars með því að færa þær til eða fjarlægja án heimildar. Af því tilefni vill sveitarfélagið brýna fyrir íbúum eftirfarandi.
Hraðahindranir og annar umferðaröryggisbúnaður eru sett upp á grundvelli faglegs mats á aðstæðum, svo sem umferðarhraða og slysahættu, með það að markmiði að auka öryggi allra vegfarenda.
Dalvíkurbyggð, sem veghaldari innan sveitarfélagsins, ber ábyrgð á ákvörðunum um staðsetningu og fyrirkomulag slíkra úrbóta. Einstaklingum er því óheimilt að eiga við, færa eða fjarlægja hraðahindranir eða annan umferðaröryggisbúnað.
Samkvæmt vegalögum nr. 80/2007 er óheimilt að raska öryggi umferðar með því að eiga við mannvirki á vegi eða skilja eftir hluti á vegsvæði sem geta valdið hættu. Einnig getur slíkt athæfi varðað við ákvæði almennra hegningarlaga um röskun á umferðaröryggi og eignaspjöll.

Þegar umferðaröryggisbúnaður er hreyfður eða skemmdur skapast raunveruleg slysahætta. Sá sem ber ábyrgð á slíkum inngripum getur því bakað sér bæði refsiábyrgð og skaðabótaábyrgð verði tjón eða slys rakið til háttseminnar.
Dalvíkurbyggð hvetur íbúa sem hafa athugasemdir við staðsetningu hraðahindrana eða vilja koma á framfæri ábendingum um umferðaröryggi til að gera það með formlegum hætti, til dæmis í gegnum ábendingagátt á heimasíðu sveitarfélagsins eða með því að hafa samband við skrifstofu Dalvíkurbyggðar.
Jafnframt er óskað eftir því að íbúar láti vita ef þeir verða varir við óheimil inngrip í umferðaröryggisbúnað.
Við viljum öll búa við öruggt nærumhverfi og því skiptir samvinna okkar allra miklu máli.
Dalvíkurbyggð