Tilkynning vegna lausagöngu hunda.

Tilkynning vegna lausagöngu hunda.

Að gefnu tilefni þá viljum við minna hundaeigendur á það að í Dalvíkurbyggð eru reglur um lausagöngu hunda. Lausaganga hunda er almennt bönnuð nema á skilgreindu útivistarsvæði fyrir hunda, innan hundheldra girðinga eða á auðum svæðum fjarri íbúabyggð. Eigendum hunda ber að virða þessar reglur og fara eftir þeim. Eigendum og umráðamönnum hunda er líka ávallt skylt að fjarlægja saur eftir hunda sína.

Samþykkt um hundahald í Dalvíkurbyggð má finna hér.