Vegna viðvarandi frosts undanfarna daga og lágrar stöðu í vatnsbóli á svæðinu vill sveitarfélagið beina þeim tilmælum til íbúa á Árskógsströnd, Hauganesi og Árskógssandi að fara sparlega með kalt vatn þar til annað verður tilkynnt.
Aukin notkun við þessar aðstæður getur haft áhrif á stöðugleika vatnsveitunnar. Mikilvægt er að allir leggi sitt af mörkum til að draga úr álagi á kerfið með því að takmarka óþarfa vatnsnotkun eins og unnt er.
Íbúar eru því vinsamlegast beðnir um að:
- Sýna aðgát í notkun á köldu vatni
- Fresta eða dreifa vatnsfrekum verkum ef mögulegt er
- Gæta að því að ekki sé leki í lögnum eða búnaði
Sveitarfélagið fylgist náið með stöðu mála og mun veita frekari upplýsingar eftir þörfum.
Við þökkum íbúum fyrir skilning og samvinnu.