Tilkynning frá Eigna- og framkvæmdadeild

Tilkynning frá Eigna- og framkvæmdadeild

Félög innan BSRB hafa boðað vinnustöðvun mánudaginn 5. júní 2023 til og með miðvikudeginum 5. júlí 2023 hjá félagsfólki sem starfar hjá Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar.

Ef ekki næst að semja fyrir þann tíma mun það hafa mjög mikil áhrif á starfsemi Eigna- og framkvæmdadeildar. Ef af verkfalli verður mun til að mynda ekki vera hægt að halda úti starfsemi Vinnuskóla auk þess sem mörg önnur sumarverkefni deildarinnar munu tefjast.

Helga Íris Ingólfsdóttir

Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar