Starfsfólk óskast við íbúðakjarna og skammtímavistun.

Starfsfólk óskast við íbúðakjarna og skammtímavistun.

Starfsfólk við íbúðakjarna og skammtímavistun:

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir lausnamiðuðum, metnaðarfullum og drífandi starfsmanni við íbúðakjarna og skammtímavistun í 78% stöðuhlutfall til að sinna íbúum í sjálfstæðri búsetu/skammtímavistun. Um er að ræða úrræði fyrir fatlaða einstaklinga með fjölþættan vanda.

Unnið er á dag-, kvöld-, nætur og helgarvöktum. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og þurfa að geta hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Félagsþjónustan sér um og leggur metnað í að veita notendum fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að styðja við sjálfstæða búsetu og skapa notendum aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi á heimili sínu þrátt fyrir skerðingu á færni. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.

 

Helstu verkefni:

  • Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta við íbúa með fjölþættan vanda og stuðningsþörf, sem miðar að því að leiðbeina og aðstoða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg störf varðandi húshald eftir því sem þörf krefur.
  • Hvatning og stuðningur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni, innan og utan heimilis.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa og notendur Skammtímavistunar.
  • Jákvæð og uppbyggileg samskipti við þjónustunotendur, aðstandendur og samstarfsfólk.
  • Leiðbeina og aðstoða við atvinnu.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta
  • Bílpróf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.

 

Umsóknarfrestur er til og með sunnudagsins 17.desember 2023.

 

Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Greitt er samkv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kjalar.

 

Sótt er um starfið í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda.

 

Ef umsækjendur uppfylla ekki hæfniskröfur áskilur stjórnandi sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar um starfið gefa; Þórhalla Franklín Karlsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, netfang: tota@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4900 og Hildur Birna Jónsdóttir forstöðumaður íbúðakjarna og skammtímavistunnar, netfang: hildurbj@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4927 og

 

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan.

Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.