Sumarfrístund 2026

Sumarfrístund 2026

Sumarfrístund 2026

Sumarfrístund Dalvíkurbyggðar verður starfrækt sumarið 2026 í húsnæði Frístundar í Dalvíkurskóla. Boðið verður upp á sex vikulangar námskeiðsvikur með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá þar sem áhersla er lögð á leik, útivist, skapandi verkefni og ævintýraferðir í nærumhverfi. Starfstími sumarfrístundar er virka daga frá kl. 09:00–15:30.

Námskeiðsvikur

Fyrir börn fædd 2019–2016
(1.–4. bekkur)
Vika 1: 8.–12. júní
Vika 2: 15.–19. júní (Lokað 17. júní)
Vika 3: 22.–26. júní
Vika 4: 29. júní – 3. Júlí

Fyrir börn fædd 2020–2018
(útskriftarhópur leikskóla, 1. og 2. bekkur)
Vika 5: 10.–14. ágúst
Vika 6: 17.–21. Ágúst

Valmöguleikar og verð
Hægt er að velja um eftirfarandi:

Fyrir hádegi – kl. 09:00–12:00
Verð: 6.945 kr. á viku
Eftir hádegi – kl. 12:00–15:30
Verð: 8.100 kr. á viku
Allur dagurinn – kl. 09:00–15:30
Verð: 15.045 kr. á viku

Hressing og nesti
Boðið verður upp á létta hressingu bæði fyrir og eftir hádegi. Börn sem dvelja allan daginn í sumarfrístund þurfa að koma með nesti fyrir hádegismat. Við biðjum foreldra og forráðamenn að velja næringarríkt og hentugt nesti.

Systkinaafsláttur og frístundastyrkur
Hægt er að nýta systkinaafslátt og frístundastyrk vegna sumarfrístundar. Til að nýta systkinaafslátt þurfa systkini að vera skráð í sumarfrístund á sama tíma.

Foreldrar og forráðamenn sem vilja nýta systkinaafslátt og/eða frístundastyrk eru beðnir um að hafa samband við Heru Margréti, frístundafulltrúa Dalvíkurbyggðar, á netfangið: hera.margret@dalvikurbyggd.is

Dagskrá sumarfrístundar
Allir dagar hefjast og enda í Frístund í húsnæði Dalvíkurskóla. Yfir daginn taka börnin þátt í fjölbreyttum verkefnum, leikjum, útivist, klúbbastarfi og ferðum í nærumhverfi.

Nánari dagskrá verður send til foreldra skráðra barna þegar nær dregur.
Við biðjum foreldra og forráðamenn að senda börn klædd eftir veðri og dagskrá hvers dags.
Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um sumarfrístund veitir Hera Margrét, frístundafulltrúi Dalvíkurbyggðar, hera.margret@dalvikurbyggd.is

Hægt er að skrá hér: https://dalvik.wiselausnir.is/umsoknir/sumarfristund/