Dagana 6. og 7. júní verður Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur í Dalvíkurbyggð með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Boðið verður upp á hefðbundna viðburði á bryggjunni, skemmtun fyrir börnin, hátíðarkvöldverð og ball, auk sjómannadagsmessu og heiðrunar á sunnudegi.
Sveitarfélagið hvetur íbúa og gesti til að fjölmenna og taka þátt í þessari skemmtilegu fjölskylduhátíð þar sem sjómennska, samfélag og samvera eru í öndvegi.
Dagskrá laugardagsins 6. júní
Á bryggjunni
Kl. 10:00 – Dorgveiðikeppni barna
Keppnin fer fram á norðurgarði. Veiði hefst stundvíslega kl. 10:00 og því mikilvægt að mæta tímanlega. Veitt verða verðlaun fyrir þyngsta fiskinn, stærsta marhnútinn og flesta fiska. Guðrún Anna Óskarsdóttir verður þulur keppninnar.
Kl. 11:00 – Heiðursmannaróður
Kl. 11:15 – Keppnisgreinar hefjast
Keppt verður í:
Kappróðri
Reipitogi
Naglaboðhlaupi
Koddaslag
Jafnframt verða veitt verðlaun fyrir flottasta búning karla og kvenna og fyrir fallegasta áralagið.
Á hátíðarsvæðinu
Boðið verður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna:
- Grillaðar pylsur frá kl. 12:00–14:00
- Candy floss frá kl. 13:00–14:00
- Andlitsmálning fyrir börn frá kl. 11:30
- Brúðubíllinn verður á svæðinu
Allt er þetta gestum að kostnaðarlausu.
Hátíðarkvöldverður og ball
Hátíðarkvöldverður fer fram í Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar.
- Hlaðborð frá RUB23
- Húsið opnar kl. 19:00
- Borðhald hefst kl. 19:50
- Veislustjórar: Erna Hrönn og Magni Ásgeirs
- Sérstakur gestur: Ari Eldjárn
Að borðhaldi loknu er dansleikur með:
Hvanndalsbræðrum ásamt Magna og Ernu Hrönn.
Ballið hefst kl. 22:30.
Athygli er vakin á að miðar á ballið eru seldir sér og er aldurstakmark 18 ár.
Sunnudagurinn 7. júní
Kl. 13:00 – Sjómannadagsmessa og heiðrun
Að messu lokinni býður Slysavarnardeildin Dalvík upp á kaffihlaðborð.
Sjómannadagurinn er einn af viðburðum ársins í Dalvíkurbyggð og býður upp á skemmtilega samveru fyrir fjölskyldur, vini og gesti.
Við hlökkum til að sjá sem flesta á bryggjunni og í hátíðarstemningu um helgina. ⚓️🌊