Nýtt deiliskipulag fyrir hesthúsasvæði í Hringsholti Tillaga á vinnslustigi

Nýtt deiliskipulag fyrir hesthúsasvæði í Hringsholti Tillaga á vinnslustigi

Nýtt deiliskipulag fyrir hesthúsasvæði í Hringsholti

Tillaga á vinnslustigi
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt að kynna drög að tillögu fyrir nýtt deiliskipulag hesthúsasvæðis í Hringsholti.
Deiliskipulagið er unnið í samstarfi við Hestamannafélagið Hring og miðar að framtíðaruppbyggingu á svæðinu. Meðal þess sem skilgreint er í deiliskipulaginu eru lóð og skilmálar fyrir nýja reiðhöll, lóðir og skilmálar fyrir ný hesthús, bílastæði og geymslusvæði, auk reiðstíga innan svæðis og tenginga við aðliggjandi svæði.

Deiliskipulagsgögn má nálgast hér og greinargerð hér. 

Gögnin má einnig nálgast í afgreiðslu á 1.hæð í ráðhúsi Dalvíkur og á Skipulagsgátt: www.skipulagsgatt.is undir máli nr. 1575/2025, frá 19.maí til 9.júní 2026.

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér tillöguna og senda inn ábendingar, annað hvort með tölvupósti á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til framkvæmdasviðs í Ráðhúsi Dalvíkur eða í gegnum Skipulagsgátt.

Frestur til að senda inn ábendingar er til 9.júní 2026.