Búið er að opna nýja losunarstaði í námunni á Hrísamóum fyrir bæði garðaúrgang og óvirkann úrgang. Um leið verður losunarstöðum í Höfða fyrir þessa úrgangsflokka lokað og öll losun þar bönnuð.


Aðkoma að námunni á Hrísamóum er frá þjóðvegi 83 rétt vestan við brúna yfir Hálsána (sjá rautt á mynd). Keyrt er niður í námuna til norðurs frá þjóðveginum og eru losunarsvæðin á hægri hönd þegar komið er niður. Aðkoma er sýnd með rauðum lit á mynd.
Garðaúrgangur fer á græna svæðið á myndinni en óvirki úrgangurinn á bleika svæðið. Búið er að merkja svæðin vel með skiltum þannig að allir ættu að finna rétta staði.
Garðaúrangur er allur lífrænn úrgangur sem fellur til við umhirðu garða og opinna svæða ss. gras, plöntuleyfar, greinar og trjábolir. Ekki er heimilt að losa annan úrgang á þessu svæði og ekki má skilja eftir plast eða aðrar umbúðir.
Óvirkur úrgangur er efni sem brotnar ekki niður og hefur ekki skaðleg áhrif á umhverfið, ss. uppmokstur, múrbrot , malar- og moldarefni. Ekki er heimilt að losa gler í miklu magni og ekki má losa postulín eða malbik.
Íbúar eru beðnir um að ganga snyrtilega um losunarstaðina, tæma poka og önnur ílát og taka með sér til baka.