Nafnasamkeppni - nýjar götur á Hauganesi

Nafnasamkeppni - nýjar götur á Hauganesi

Nú nýverið var samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir Hauganes. Samkvæmt deiliskipulaginu er gert ráð fyrir nýjum götum og fjölgun lóða undir bæði íbúðir og atvinnustarfsemi. Dalvíkurbyggð óskar eftir tillögum að nöfnum á fjórar nýjar götur á Hauganesi.

Göturnar eru merktar á deiliskipulagi á eftirfarandi hátt:

A-holt, vestan Ásholts, þar sem gert er ráð fyrir íbúðabyggð.

B-holt, vestan A-holts, þar sem gert er ráð fyrir íbúðabyggð.

C-gata, einstefnugata frá Hafnargötu að Aðalgötu, þar sem gert er ráð fyrir verbúðum og aðkomu að skolpdælustöð.

D-gata, norðan við Aðalgötu, þar sem gert er ráð fyrir íbúðabyggð.

Deiliskipulagið er aðgengilegt hér, bæði uppdráttur og greinargerð. 

Hægt er að skila inn tillögum með eyðublaði inn á íbúgátt Dalvíkurbyggðar. Eyðublaðið má finna undir flipanum "umsóknir" og "umsóknir og eyðublöð á framkvæmdasviði".  Eyðublaðið er merkt "Nafnasamkeppni - Götur á Hauganesi".

Tekið verður við tillögum til 10. apríl 2023.