Leikskólakennari – Krílakot

Leikskólakennari – Krílakot

Leikskólakennari - Krílakot

Krílakot í Dalvíkurbyggð auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf frá og með 12. ágúst.
Leikskólinn Krílakot er heilsueflandi leikskóli sem vinnu eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar.
Gildi Krílakots eru Gleði – Sköpun – Þor og má kynna sér starf Krílakots hér.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna og verkefnum sem því tengjast.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs.
  • Tekur þátt í þróunarverkefnum leikskólans.
  • Vinnur að faglegu starfi og samvinnu innan skólans.
  • Samstarf við aðrar stofnanir og sérfræðinga.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla á leikskólastigi og umönnun barna æskileg.
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 https://www.rannis.is/media/islenskukennsla/Evropski-tungumalaramminn.pdf
  • Hreint sakavottorð.

Starfið hentar öllu kynjum. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands og Félags leikskólakennara.
Ef umsækjendur uppfylla ekki menntunar- og hæfniskröfur áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Við hvetjum áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna.

Sótt er um starfið í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af leyfisbréfi, ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila.

Umsóknafrestur er til og með 21. maí 2025
Frekari upplýsingar um starfið í Krílakoti veitir: Ágústa Kristín Bjarnadóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið agusta@dalvikurbyggd.is

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan.
Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.