Laust til umsóknar - Leikskólakennari

Laust til umsóknar - Leikskólakennari

Árskógarskóli auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf frá og með 15. ágúst 2023, um er að ræða afleysingu til eins árs. Næsti yfirmaður er deildarstjóri skólans.

Árskógarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með 16 börn á leikskólastigi og 23 nemendur í 1. – 7. bekk. Einkunnarorð skólans eru: GLEÐI – VIRÐING – ÞRAUTSEIGJA. Í grunnskólanum er samkennsla í tveimur umsjónarhópum og ein deild í leikskólanum. Mikið samstarf er á milli skólastiga. Skólinn vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu.

Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna og verkefnum sem því tengjast.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs.
  • Tekur þátt í þróunarverkefnum skólans.
  • Vinnur að faglegu starfi og samvinnu innan skólans.
  • Samstarf við aðrar stofnanir og sérfræðinga.
  • Foreldrasamstarf

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Starfsreynsla á leikskólastigi æskileg.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Góð færni í mannlegum samskipum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Stundvísi.
  • Góð íslenskukunnáttu.
  • Hreint sakavottorð.

Starfið hentar öllum kynjum. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsóknarfrestur er til 13. júní 2023.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi og er þá greitt samkvæmt viðkomandi kjarasamningi.

Sótt er um starfið inn á Íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af leyfisbréfi, ferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar veitir Friðrik Arnarson, skólastjóri, í síma 460 4980 eða í tölvupósti á netfangið fridrik@dalvikurbyggd.is og Helga Lind Sigmundsdóttir, deildarstjóri, í síma 460 4971 eða í tölvupósti á netfangið helga.lind@dalvikurbyggd.is.