Kynning á matsáætlun vegna fyrirhugaðs fiskeldis við Hauganes

Kynning á matsáætlun vegna fyrirhugaðs fiskeldis við Hauganes

Kynning á matsáætlun vegna fyrirhugaðs fiskeldis við Hauganes

Í dag hefst kynning á matsáætlun vegna áforma Laxós ehf. um landeldi á laxi og/eða regnbogasilungi norðan Hauganess í Eyjafirði, Dalvíkurbyggð. Um er að ræða framkvæmd sem fellur undir lög um umhverfismat framkvæmda og er matsáætlunin fyrsta skref í því ferli.

Matsáætlunin er nú aðgengileg í Skipulagsgátt á vefnum www.skipulagsgatt.is. Þar geta íbúar og aðrir hagsmunaaðilar kynnt sér áformin nánar og komið á framfæri umsögnum sínum.
Umsagnarfrestur er til og með 13. maí 2026. Mikilvægt er að sem flestir kynni sér málið og taki þátt í kynningarferlinu með því að senda inn athugasemdir til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) í gegnum Skipulagsgátt.

Með virkri þátttöku gefst íbúum tækifæri til að hafa áhrif á mótun og framgang verkefnisins á þessu mikilvæga undirbúningsstigi.