Dalvíkurbyggð leitar nú til íbúa og annarra áhugasamra um að taka þátt í spennandi hugmyndasamkeppni um heiti á nýju íbúðahverfi sunnan Dalvíkur.
Fram undan er uppbygging á nýju hverfi sem mun setja svip á framtíð byggðarinnar, og því er mikilvægt að finna nafn sem endurspeglar staðinn, sögu hans og umhverfi. Nú gefst öllum kostur á að leggja sitt af mörkum og hafa áhrif á þetta mikilvæga val.
Skilyrði fyrir nöfnunum er að Hverfið verði nefnt og göturnar passi svo við nafnið á hverfinu, sem dæmi má nefna Hólahverfið: Skógarhólar, Reynihólar, Birkihólar o.s.frv.
Óskað er eftir:
- Tillögu að heiti á nýja hverfið
- Heitum á fjórar götur innan þess
Góð heiti geta til dæmis vísað í náttúru svæðisins, landslag, sögu eða annað sem tengist Dalvík og nærumhverfi þess.
Frestur til að senda inn tillögur er 12. júní 2026.
Við hvetjum alla til að taka þátt – saman mótum við framtíð Dalvíkur!
Hér er hægt að fylla út eyðublað til þess að skila inn tillögum að nafni.
