Fjármála og stjórnsýslusvið Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir lausnarmiðuðum og metnaðarfullum einstaklingi í 50% - 100% tímabundið fjölbreytt starf vegna afleysinga í allt að 12 mánuði, en að lágmarki 6 mánuði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfið hentar þér sem vilt fjölbreytt skrifstofustarf á líflegum vinnustað þar sem nákvæmni, samskipti og góð þjónusta skiptir máli. Þú styður við daglegan rekstur sviðsins, sinnir þjónustu, skjalavinnslu og kemur að reikninga- og launatengdum verkefnum eftir þörfum. Starfið getur verið verðmæt reynsla fyrir ferilskrána – sérstaklega fyrir þau sem vilja fá víðtæka reynslu og kynnast opinberri stjórnsýslu.
Starfssvið og helstu verkefni
- Þjónusta viðskiptavina í þjónustuveri, símsvörun og skráning erinda.
- Móttaka og skráning reikninga.
- Samskipti og upplýsingagjöf til stofnana sveitarfélagsins.
- Aðstoð í launamálum, m.a. skönnun og skráning launagagna, útgáfa vottorða og aðstoð við launakeyrslu eftir þörfum.
- Aðstoð við tilfallandi bókhalds- og innheimtuverkefni, t.d. afstemmingar.
- Önnur tilfallandi verkefni á Fjármála- og stjórnsýslusviði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla og/eða þekking af sambærilegum störfum er kostur.
- Bókhaldskunnátta er æskileg.
- Góð tölvukunnátta og lipurð í notkun upplýsingatækni.
- Góð íslenskukunnátta; enskukunnátta er kostur.
- Hæfni til að greina upplýsingar og vinna úr gögnum.
- Nákvæm vinnubrögð og gott skipulag.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund.
Næsti yfirmaður er sviðsstjóri Fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Umsókn skal fylgja greinargóð náms- og starfsferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum (ef við á), sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Þjónustugátt Dalvíkurbyggðar á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélagi. Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar (launafulltrui@dalvikurbyggd.is). Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, í síma 460-4903, 861-5393 og/eða í gegnum tölvupóst, gp@dalvikurbyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2026.
Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan. Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.