Veitustjóri-Dalvíkurbyggð leitar að öflugum og framsæknum aðila í starf veitustjóra.

Veitustjóri-Dalvíkurbyggð leitar að öflugum og framsæknum aðila í starf veitustjóra.

Hefur þú áhuga á að taka þátt í að skapa og móta framkvæmdasvið sveitafélags í örum vexti? Dalvíkurbyggð leitar að öflugum og framsæknum aðila í starf veitustjóra.

Næsti yfirmaður er sveitastjóri Dalvíkurbyggðar. Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfssvið og helstu verkefni:

  • Ábyrgð á stjórnun og rekstri þ.m.t. fjármálum fyrir þá málaflokka sem heyra undir veitustjóra.
  • Ábyrgð á stjórnun framkvæmdasviðs þ.m.t. stefnumótun, fjárhagsáætlunarvinnu og framkvæmdaáætlun ásamt skipulagsfulltrúa og deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar.
  • Yfirumsjón með rekstri, viðhaldi og nýframkvæmdum Hitaveitu Dalvíkur, Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar, Fráveitu Dalvíkurbyggðar, gagnaveitu og smávirkjanaverkefnum sveitarfélagsins.
  • Gerir tillögur til veitu- og hafnaráðs að gjaldskrám, samþykktum og reglugerðum er varða veiturnar.
  • Ábyrgð á að tekjuskráning og innheimta tekna málaflokka sé í samræmi við þau ferli og samþykktir sem eru í gildi hverju sinni.
  • Undirbúningur og eftirfylgni funda veitu- og hafnarráðs, í samráði við sveitastjóra.
  • Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af næsta yfirmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Góð þekking og haldbær reynsla af sambærilegum störfum.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, er kostur.
  • Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni.
  • Skipulagsfærni, nákvæm vinnubrögð og árverkni.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Metnaður til árangurs og jákvæðni.
  • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan. Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.

Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2023

Nánari upplýsingar veita: Sigríður Ólafsdóttir I sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir I telma@mognum.is

Hægt er að sækja um starf veitustjóra hér

Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Með umsókn þarf að fylgja ítarleg ferilskrá auk staðfestra afrita af prófskírteinum, sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.