Bruna- og rýmingaræfing á Dalbæ í dag

Bruna- og rýmingaræfing á Dalbæ í dag

Bruna- og rýmingaræfing á Dalbæ í dag

Í dag, þriðjudaginn 28. apríl kl. 16:00, fer fram bruna- og rýmingaræfing á hjúkrunarheimilinu Dalbæ með þátttöku viðbragðsaðila á svæðinu.
Æfingin er liður í reglubundnu öryggisstarfi og miðar að því að efla viðbragðsgetu starfsfólks og viðbragðsaðila, auk þess að tryggja sem best öryggi íbúa heimilisins.
Á meðan æfingin stendur yfir má búast við aukinni umferð í nágrenni Dalbæjar, sem og sírenuhljóðum, blikkljósum og auknum mannaferðum.

Íbúar sveitarfélagsins eru beðnir um að sýna aðgát á svæðinu og taka tillit til aðstæðna.