Breyting á deiliskipulagi Hauganess. Nýjar lóðir og breyting á íbúðasamsetningu.

Mynd: Whale Watching Hauganes
Mynd: Whale Watching Hauganes

Breyting á deiliskipulagi Hauganess
Nýjar lóðir og breyting á íbúðasamsetningu

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti þann 16.desember sl. að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Hauganess skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin tekur til svæðis sem afmarkast af götunum Lyngholti til austurs, B-holti til vesturs, lóðum sunnan Ásvegar til suðurs og Hauganesvegi til norðurs. Breytingin felur m.a. í sér eftirfarandi:

  • Gatan A-holt fær heitið Stórholt.
  • Gatan B-Holt fær heitið langholt.
  • Íbúðagerðum við Stórholt og Langholt er breytt.
  • Við Ásveg er gert ráð fyrir nýrri lóð, nr. 19.
  • Kvöð vegna hitaveitulagnar er sett á lóðir nr. 11 og 13 við Ásveg og lóðir nr. 1-15 við Stórholt.

Deiliskipulagsuppdrátt má nálgast hér.

Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér tillöguna og gera við hana athugasemdir ef einhverjar eru. Deiliskipulagsuppdrátt má nálgast í Ráðhúsi Dalvíkur frá 5.febrúar til 20.mars 2026. Tillagan mun einnig verða aðgengileg á sama tíma á heimasíðu Dalvíkurbyggðar: www.dalvikurbyggd.is og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is (mál nr. 104/2026).

Athugasemdum þar sem nafn, heimilisfang og kennitala sendanda kemur fram má skila á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til Framkvæmdasviðs, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í gegnum Skipulagsgátt til og með 20.mars 2026.

Skipulagsfulltrúi