Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna efnisnáms við Hálsá

Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna efnisnáms við Hálsá

Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna efnisnáms við Hálsá

Skipulagslýsing

Dalvíkurbyggð hefur hafið vinnu við breytingu á aðalskipulagi vegna áforma um efnisnám við Hálsá.
Nú liggur fyrir skipulagslýsing þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hefur við skipulagsvinnuna, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað.

Skipulagslýsinguna má nálgast hér.

Lýsingin verður jafnframt aðgengileg í Ráðhúsi Dalvíkur og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is frá 11.-29.desember 2023.
Hægt er að skila inn ábendingum við lýsinguna á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is,
bréfleiðis til Framkvæmdasviðs, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í gegnum skipulagsgátt til og með 29.desember 2023.