Laust til umsóknar - Skipulags- og byggingafulltrúi

Laust til umsóknar - Skipulags- og byggingafulltrúi

Leitað er að öflugum aðila í starf skipulags- og byggingafulltrúa en starf byggingafulltrúa er lögbundið, sbr. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.

Hlutverk hans er að veita starfinu faglega forystu og móta framtíðarstefnu innan ramma laga og reglugerða. Jafnframt að hafa eftirlit og eftirfylgni með að lögum um mannvirki nr. 160/2010, reglugerðum og öðrum lögum byggingarmála sé framfylgt.

Næsti yfirmaður skipulags- og byggingafulltrúa er sviðsstjóri Framkvæmdasviðs.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Hefur ábyrgð á stefnumótun í málaflokki skipulags- og byggingarmála og annast framkvæmd þeirra mála.
  • Umsjón og eftirlit með mannvirkjagerð, skráningu mannvirkja, úttektum, mælingum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga.
  • Umsjón með landbúnaðarmálum, lóðum, lendum og dýrahaldi.
  • Skráning í viðhaldsforrit sveitarfélagsins og umsjón með viðhaldsáætlunum fyrir eignir sveitarfélagsins í samstarfi við deildarstjóra EF-deildar og sviðsstjóra.
  • Önnur verkefni sem viðkomandi er falið hverju sinni, þá helst er tengjast skipulagsmálum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Réttindi til að gegna stöðu byggingafulltrúa.
  • Réttindi til að gegna stöðu skipulagsfulltrúa er kostur
  • Þekking og reynsla á sviði byggingarmála.
  • Þekking og reynsla á sviði skipulagsmála er kostur.
  • Þekking og reynsla af úttektum og mælingum er kostur.
  • Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingarreglugerðum.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og sambærilegum verkefnum.
  • Gott vald á íslenskri tungu í ræðu og riti.
  • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni.
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Rík þjónustulund og jákvæðni.


Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um fullt starf er að ræða.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.

Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2022 og sækja skal um á www.mognum.is. Umsókn þarf að fylgja ítarleg ferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum.
Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Ólafsdóttir hjá Mögnum, sigga@mognum.is.

Dalvíkurbyggð er blómlegt sveitarfélag við Eyjafjörð með öflugu atvinnu- og menningarlífi. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með metnaðarfullum grunn- og leikskólum. Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.