Miðaldadagar á Gásum 19. og 20. júlí

Miðaldasteming mun ríkja á Gásum helgina 19. og 20. júlí milli kl 11 og 17. Á Laugardeginum 19. Júlí kl 12:30 mun Svanfríður I. Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, bregða sér i gervi héraðshöfðingja og setja kauptíðina á Gásum að fornum sið og sönghópurinn Hymnodia syngur lög frá miðöldum. Að því loknu gefst gestum miðaldadaganna kostur á því að upplifa starfshætti og menningu síðmiðalda. Dagskrá miðaldadagana má sjá hér.

Kaupmenn og handverksfólk, íklætt miðaldaklæðaði, mun vinna að leður- og vattarsaumi, málmsteypun, jurtalitun, reipisgerð og spjaldvefnaði. Miðaldasöngur að hætti sönghópsins Hymnodiu mun hljóma um kaupstaðinn ásamt hamarshöggum eldsmiðsins og brennisteinn úr Námafjalli verður hreinsaður. Völva spáir í rúnir fyrir þá sem skyggnast vilja inní framtíðina og börn á öllum aldri geta reynt sig við bogfimi og steinakast. Í fyrsta skipti svo vitað sé í 800 ár verður leikinn knattleikur eins og hinir fornu kappar og helgjarmenni léku á sínum tíma. Miðaldamenn munu sýna réttu handtökin en áhugasömum gestum gefinn kostur að taka þátt og sýna hvað í þeim býr. Örleikþátturinn Munkar og Mjöður, sem lauslega er byggður á viðburðum og fólki sem nefnt er í hinum fornu ritum, verður frumsýndur á laugardeginum og leikinn tvisvar hvorn dag. Kaupmennirnir og handverksfólkið kemur að sjálfsögðu hlaðið vörum í kaupstaðinn og því viðbúið að perlur, gler, skart, trésverð, skeiðar, litað band og fleiri skemmtilegir hlutir ættaðir frá miðöldum skipti um eigendur. Greiðslukort tíðkuðust vitaskuld ekki á miðöldum og því eru gestir beðnir um að hafa með sér reiðufé (vöruskipti því miður ekki möguleg) hyggist þeir fara vörum hlaðnir frá Gásum. Friðrik V mun, í samvinnu við Norðlenska, elda súpu í miðaldastíl sem verður seld gegn vægu gjaldi til styrktar áframhaldandi lifandi miðlunar á Gásum. Auk þess verður boðið uppá leiðsögn báða dagana um þennan merka sögustað.Aðgangseyrir er 1000 kr. á fullorðinn, 13 ára og yngri borga 250 kr en fyrir þá sem eru minni en miðaldasverð er enginn aðgangseyrir.Að þessu sinni er það Gásakaupstaður ses í samvinnu við Minjasafnið á Akureyri sem stendur að miðaldadögunum á Gásum.

Að sjálfseignastofnuninni Gásakaupstaður ses, sem stofnuð var í desember 2007 standa Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Gásafélagið, Grýtubakkahreppur, Hörgárbyggð, Minjasafnið á Akureyri, Svalbarðsstrandarhreppur og Gásahópurinn - handverksfólk úr Eyjafirði. Helstu markmið stofnunarinnar er að vinna að uppbyggingu þjónustu og sýningarsvæðis til að miðla upplýsingum um hinn forna sögustað Gásakaupstað í Eyjafirði þannig að á Gásum verði hægt að fá heildstæða upplifun á því hvernig lífið var í Gásakaupstað á miðöldum og skapa lifandi vettvang til að koma sögu staðarins á framfæri við almenning. Framkvæmdir við 1. Áfanga uppbygginar á Gásum eru hafnar. Nýr vegur ásamt bílastæði gera aðkomuna að svæðinu aðgengilegri. Komið hefur verið upp salernisaðstöðu og í haust munu 2 fræðsluskilti um staðinn verða afhjúpuð. Minjasafnið á Akureyri vinnur auk þess Þessa dagana að því í samvinnu við Fornleifavernd ríkisins að ganga frá búðartóftunum sem grafið hefur verið í síðustu árin. Og síðast en ekki síst hefur Gásakaupstaður ses fengið barnabókahöfundurinn Brynhildi Þórarinsdóttur til að skrifa barnabók um Gásir sem m.a. styrkt er af Menningarráði Eyþings.

Dagskrá markaðarins í heild sinni má finna á www.gasir.is