Böggur heitir reiturinn

Böggur heitir reiturinn

Síðastliðinn laugardag var haldin hausthátíð í skógarreitnum neðan við Brekkusel. Kynning var á reitnum, farin skoðunarferð og boðið uppá kaffi og kleinur. Mestur spenningur var samt fyrir nýju nafni sem afhjúpað var á hátíðinni. Haldin var nafnasamkeppni þar sem öllum gafst tækifæri til að senda inn tillögur. Alls bárust 18 tillögur að nafni frá 13 aðilum. Valin var dómnefnd sem fékk það hlutverk að velja nafnið.

Nafnið sem varð fyrir valinu er Böggur en það var Kristín Aðalheiður Símonardóttir sem sendi þá tillögu inn. Það var garðyrkjustjórinn, Jón Arnar Sverrisson, sem tilkynnti nafnið og afhenti sigurvegaranum viðurkenningarskjal og blágreni í verðlaun.

Skýringar á nafni Böggur má finna víða:

  • Ekki vitað hvaðan Böggvis kemur upprunalega en Böggvisstaðir var ekki landnámsjörð heldur verður til síðar.
  • Til eru margar útgáfur af þessu nafni – eins og Böggversstaðir, Böggvestaðir, Böggustaðir og Böggstaðir.
  • Í Svarfdælu kemur fram að Ingveldur Fögurkinn hafði átt bróður sem hét Böggvir og afi þeirra var Ljótur.
  • Það kemur líka fram í Svarfdælasögu að Klaufi hafi haft þetta viðurnefni vegna þess hvað hann var óheppinn og ljótur, en þá er orðið tengt við bagga eins og einhvern tálma, samanber hvað baggaði honum eða hvað baggar honum eins og eitthvert mein.
  • Í dag segjum við hvað er að bögga þig, sem er sama merking í fornöld. Því má segja að þetta orð sé gamalt íslenskt orð, að bögga, en það tengist líka enska orðinu bögg sem mikið er notað í tölvuheiminum þegar einhver bilun er. Þarna sést tenging íslenskunnar við keltnesku eða ensku í dag.
  • Í sumum ritum er Böggur sagt vera böggull eða baggi eins og enska orðið bag. Böggustaðir/Böggvisstaðir þýðir samkvæmt þessu Baggastaðir.
  • Áður fyrr hét Dalvík Böggvisstaðasandur, stundum kallað líka Böggviðsstaðasandur því mikill rekaviður gekk hér upp í fjöru sem var nýttur til ýmissa hluta.
  • Dómnefndin var sammála um þetta nafn, eina sérnafnið sem kom sem ekki tengdist skógi, reit eða hafði annað fylginafn. Hér í kring er allt Böggvisstaðafjall, Böggvisstaðasandur, Böggvisstaðabraut, Böggvisstaðahólar og svo framvegis. En þarna kom einfaldlega stytting á þessum nöfnum- grunnurinn í þeim öllum sem er Böggur.