Sunddagurinn mikli verður haldinn hátíðlegur í Sundlaug Dalvíkur laugardaginn 22. september næstkomandi en hann er haldinn hátíðlegur víða um land.
Frítt verður í sund á opnunartíma frá kl. 10:00 - 18:00 og verður hægt að fá leiðbeiningar og ábendingar varðandi sund á milli kl. 11:30-12:30.
Sundfélagið Rán mun veita viðurkenningar fyrir 200 m sund og lengri vegalengdir. Upplýsingar um starfsemi félagsins verða veittar á staðnum. Tekið verður á móti skráningum nýrra félaga.
Dalvíkurbyggð og Sparisjóður Svarfdæla styrkja Sunddaginn mikla.