Sumarstörf á Eigna- og framkvæmdadeild

Sumarstörf á Eigna- og framkvæmdadeild

Framkvæmdasvið Dalvíkurbyggðar auglýsir þrjú 100% störf sumarstarfsmanna á eigna- og framkvæmdadeild. Starfsmenn starfa undir deildarstjóra eigna- og framkvæmdadeildar.

Starfstími er frá 1. júní til 31. ágúst 2022, en best væri ef starfsmenn gætu hafið störf sem fyrst.

Um er að ræða 100% starfshlutfall, en möguleiki á minna hlutfalli eða vinnu hluta úr sumri.

Helstu verkefni:

  • Umhirða útisvæða.
  • Viðhald á eignum sveitarfélagins.
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur:

  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Samskipta- og skipulagshæfni.
  • Reynsla af sambærilegum störfum kostur.
  • Góður kostur er að hafa bílpróf og dráttarvélapróf (minna vinnuvélanámskeið).


Greitt er samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kjalar.

Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2022.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á Íbúagátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar (undir umsóknir > atvinnuumsókn > Atvinnuumsókn EF-deildar).

Umsóknum um starfið skal fylgja ferilsskrá, rökstuðningur fyrir hæfni í starfi og stutt persónuleg kynning.

Allar nánari upplýsingar veitir Helga Íris Ingólfsdóttir deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar Dalvíkurbyggðar í síma 853-0220 eða helgairis@dalvikurbyggd.is.