Laust til umsóknar - nemendur vinnuskóla sumarið 2022

Laust til umsóknar - nemendur vinnuskóla sumarið 2022
Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar auglýsir laus störf nemenda vinnuskóla. Öll ungmenni sem stunda nám í grunnskóla í Dalvíkurbyggð fædd á árunum 2006, 2007 og 2008 geta sótt um, einnig ef nemandi á a.m.k. annað foreldri með lögheimili í Dalvíkurbyggð.
 
Vinnuskóli hefst 6. júní og er áætlaður starfstími eftirfarandi:
Árgangur 2006: 10 vikur, 6,5 klst. á dag.
Árgangur 2007: 8 vikur, 3,5 klst. á dag
Árgangur 2008: 5 vikur, 3,5 klst. á dag
 
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl nk.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á minni Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/
Skráning nemenda í vinnuskóla í gegnum Mína Dalvíkurbyggð
 
Að gefnu tilefni er það tekið fram að allir þeir nemendur sem ætla að sækja um í vinnuskólanum í sumar þurfa að sækja Íslykil til að geta skráð sig á Mína Dalvíkurbyggð. Hann er hægt að nálgast við skráningu inn í Mína Dalvíkurbyggð, eða á www.island.is. Þegar komið er inn í mína Dalvíkurbyggð er notað formið „Atvinnuumsókn“. og valið “Nemendur vinnuskóla

Athugið að foreldrar geta ekki sótt um í gegnum sinn Íslykil, þar sem skráning verður sjálfkrafa á kennitölu þess sem skráir sig inn á Mína Dalvíkurbyggð.
 
Nánari upplýsingar veitir undirrituð
 
Helga Íris Ingólfsdóttir
Deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar Dalvíkurbyggðar