Laust til umsóknar - Leikskólakennari á Krílakoti

Laust til umsóknar - Leikskólakennari á Krílakoti

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf frá og með 1. oktbóber 2022.

Leikskólinn Krílakot er 5 deilda leikskóli á Dalvík. Leikskólinn Krílakot er heilsueflandi leikskóli sem vinnur eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar. Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein, Orðaleikur, Grænfáni, útikennsla og stærðfræði.

Gildi Krílakots eru Gleði – Sköpun – Þor.

Hægt er að kynna sér starf Krílakots hér https://www.dalvikurbyggd.is/krilakot

 Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna.
  • Vinnur að faglegu starfi og samvinnu innan skólans.
  • Foreldrasamstarf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Starfsreynsla á leikskólastigi æskileg.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Stundvísi.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.

Starfið hentar öllum kynjum.

Umsóknafrestur er til 20. september 2022.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa er greitt samkvæmt viðkomandi kjarasamningi.
Sótt er um starfið í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is. Með umsókn skal fylgja afrit af leyfisbréfi, ferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila.
Ef umsækjendur uppfylla ekki menntunar- og hæfniskröfur áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar veitir: Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið gudrunhj@dalvikurbyggd.is

Dalvíkurbyggð er tæplega 1900 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi. Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.