Veðurklúbburinn á Dalbæ með veðurspá febrúarmánaðar

Janúarspá gekk allvel eftir að mati félaga. Nýtt tungl kviknaði 26. janúr, þorratungl, í a.s.a. kl. 7:55. Ef fyrstu og síðustu dagar janúar eru góðir boðar það góðan vetur.

Klúbbfélagar töldu næsta mánuð all góðan en gæti breyst lítilega í byrjun Góu. Þó eru engin slæm veður sjáanleg.
Ofurlítið verður um suðvestan áttir, stundum all hvassar.

Þorrastórhríð þið ei sjáið
en þéttings snjó í fjöllum.
Kærar frá oss kveðjur fáið
klúbbfélögum öllum.

Veðurklúbburinn Dalbæ.