Umsóknir um styrk úr Menningarsjóði Sparisjóðs Svarfdæla, 25. febrúar

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði Sparisjóðs Svarfdæla. Samkvæmt 2. grein skipulagsskrár sjóðsins er tilgangur hans að veita styrki til hvers konar menningarmála á starfssvæði Sparisjóðs Svarfdæla, en það er Dalvíkurbyggð og Hrísey.

Umsóknarfrestur er til 25. febrúar 2009. Umsóknum skal skila til stjórnar sjóðsins sem veitir nánari upplýsingar. Stjórnina skipa:

Björn Daníelsson, Laugabrekku, Svarfaðardal (bubbidan@simnet.is  )
Friðrik Friðriksson, Laugagerði, Svarfaðardal (FFMJ@simnet.is  ) formaður
Kristrún Sigurðardóttir, Ásholti 1, Hauganesi ( kristrun@dalvik.is  )

Umsóknareyðublöð fást hjá ofanrituðum, á afgreiðslustöðum Sparisjóðsins og á heimasíðu hans. Slóðin er http://spsv.is/

Styrkþegar ársins 2008 eru minntir á að skilafrestur greinargerða rennur út 10. febrúar n.k.


Stjórn Menningarsjóðs Sparisjóðs Svarfdæla