Umsækjendur um starf laugarvarðar kvenna

Umsóknarfrestur um starf laugarvarðar/baðvarðar í Sundlaug Dalvíkur rann út þann 15. mars og bárust tvær umsóknir.

Umsækjendur voru Anna Lísa Stefánsdóttir, Dalvíkurbyggð og Inga Sigrún Ingvadóttir, Dalvíkurbyggð, en sú síðarnefnda hefur dregið umsókn sína til baka. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu í starfið en umsjón með ráðningu hefur fjármála- og stjórnsýslustjóri Dalvíkurbyggðar.