Sunddagurinn mikli 2020

Sunddagurinn mikli 2020

Sunnudaginn 27. september verður Sunddagurinn mikli í Dalvíkurbyggð. Í tilefni dagsins verður frítt í sund í Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar og opið er í lauginni á milli kl. 9 - 17. Veittar verða viðurkenningar fyrir 200 m eða lengri sund milli kl. 10.00 - 13:45. Klukkan 11.00 verður sundfimi í boði og mun æfingin vera í höndum Ásu Fannar.

Tekið verður á móti skráningum á sundæfingar hjá Sundfélaginu Rán fyrir haustið 2020. 

Æfingar verða mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 17.

Sundfélagið Rán