Sumarleyfi sveitarstjórnar

Sumarleyfi sveitarstjórnar

Á síðasta fundi sveitarstjórnar þann 28. júní síðastliðinn var samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum sú tillaga að fresta fundum sveitarstjórnar í júlí og ágúst 2022, með vísan í 8. gr. í Samþykktum um stjórn Dalvíkurbyggðar. Jafnframt er byggðaráði Dalvíkurbyggðar falin fullnaðarafgreiðsla þeirra mála, sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu frá og með 29. júní 2022 til og með 31. ágúst 2022.