Óvissustig vegna jarðskjálfta - Hegðun, varnir og viðbúnaður

Óvissustig vegna jarðskjálfta - Hegðun, varnir og viðbúnaður

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. Fjöldi misgengja er á þessu svæði og ómögulegt er að segja hvaða áhrif stórir jarðskjálftar hafa á þau misgengi. Svæðið er hluti af Tjörnesbrotabeltinu; misgengissvæði milli rekbeltanna sem liggja um Ísland og norður eftir Kolbeinseyjarhrygg, og algengt er að þarna komi hrinur skjálfta.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.

Viðbúið er að grjóthrun geti orðið við þessar aðstæður og fólk er beðið um að hafa vara á undir bröttum hlíðum.
Hér má síðan finna tengil inn á varnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta.

Eftirfarandi upplýsingar eru af vefsíðu almannavarna varðandi hegðun í jarðskjálfta.

Ef þú ert innandyra þegar þegar jarðskjálfti byrjar– ekki hlaupa af stað.

• Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað

• Farðu undir borð eða rúm og haltu þér í borð-  eða rúmfót

• Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg

• Verðu höfuð þitt og andlit með kodda- ef þú vaknar upp við jarðskjálfta

• Haltu þig frá gluggum – þeir geta brotnað

• Láttu vita af þér með SMS þegar jarðskjálftnn hættir

Ef þú er utandyra þegar þú finnur jarðskjálfta – ekki hlaupa inn

• Vertu áfram úti

• Ekki vera nálægt háum byggingum sem geta hrunið eða háum trjám

• Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta fallið úr hlíðum og fjalllendi

• Raflínur geta verið hættulegar – varist að snerta þær

• Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að

Ef þú ert að keyra bíl þegar þú finnur jarðskjálfta: • Legðu bílnum og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta

• Hafðu sætisbeltin spennt

• Haltu kyrru fyrir í bílnum þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem fer af  stað í jarðskjálfta – hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.