Óskað eftir verkefnum til þátttöku

Óskað er eftir umsóknum um verkefnastuðning frá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar. Allar atvinnugreinar hafa jafna möguleika á stuðningi, uppfylli umsóknir skilyrði og helstu atriði sem lögð eru til grundvallar við mat umsókna. Skilyrði er að í verkefni sé um ræða samstarf tveggja eða fleiri aðila og skal minnst helmingur þátttakenda vera fyrirtæki. Lögð verður áhersla á verkefni sem efla tengsl háskóla og atvinnulífs, sem og verkefni sem miða að markaðssetningu og útrás

Við val á verkefnum verður við það miðað að þau efli nýsköpun á Eyjafjarðarsvæðinu og stuðli að vexti svæðisins. Verkefni sem hljóta munu samþykki hjá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar fá allt að 50% heildarkostnaðar við þau, gegn mótframlagi annarra þátttakenda.

Umsóknarfrestur er til 1.október.

Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á heimasíðu Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar www.afe.is