Námskeið í ullarþæfingu

Nú eru óðum að hefjast námskeið fyrir fullorða á vegum  Húsabakkaskóla og er námskeið í ullarþæfingu fyrst á dagskrá. Kennari á námskeiðinu er Ingibjörg Kristinsdóttir og verður kennt fjögur kvöld í Ytra húsinu á Húsabakka. Tekið er við skráninum á netfanginu husabakki@dalvik.is og fer nú hver að verða síðastur að skrá sig þar sem það fer að verða fullbókað á námskeiðið.

Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum og fyrsta kvöldið verður fimmtudaginn 20. janúar. Eins og áður sagði verður kennt í Ytra húsinu á Húsabakka. Kostnaður við námskeiðið er 8.000 kr. auk efnisgjalds, sem fer eftir því hve mikið efni nemendur nota á námskeiðinu.