Kveðjustund fyrir Elyass Kristinn

Kveðjustund fyrir Elyass Kristinn

Í dag föstudaginn 25. febrúar kvaddi hann Elyass Kristinn okkur, af því tilefni var haldin lítil kveðjustund fyrir hann hér á leikskólanum í dag. Var hann útskrifaður með rauðri rós og glæsilegri minningarmöppu fullri af myndum af veru hans hér á Kátakoti. Elyass er að flytja til Blönduóss þar sem hann fer í leikskóla. Við þökkum Elyassi kærlega fyrir samveruna og skemmtilegar stundir frá því í haust, vonandi vegnar honum sem allra best í nýja leikskólanum sínum.