Fjárhagsáætlunargerð 2015

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2015-2018 . Því er auglýst eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.

Þeir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta starfs- og fjárhagsár Dalvíkurbyggðar er bent á að skila þeim skriflega í þjónustuver Skrifstofa Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsi Dalvíkur eða senda í tölvupósti til sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í síðasta lagi mánudaginn
1. september 2014.

Vakin er athygli á að á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, www.dalvikurbyggd.is, er að finna reglur Dalvíkurbyggðar er gilda almennt um styrkveitingar. Þar kemur fram, meðal annars, hvaða gögn og upplýsingar þurfa að fylgja með ef um er ræða erindi og/eða umsóknir um styrki.

F.h. Dalvíkurbyggðar,
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs
Netfang: gp@dalvikurbyggd.is