Dagur hinna villtu blóma

Dagur hinna villtu blóma

Dagur hinna villtu blóma er haldinn 19. júní næstkomandi á öllum Norðurlöndunum og í annað skipti á Íslandi. Þennan dag gefst fólki víðs vegar um landið kosstir á að fara í stutta gönguferð um nágrenni sitt og fá leiðsögn um algengustu plöntur sem þar vaxa.  Gönguferðir þessar eru ókeypis fyrir þátttakendur og ekki þarf að tilkynna þátttöku fyrir fram.

Í tilefni dagsins verður farið í eins til tveggja tíma rólega gönguferð þar sem hugað verður að villtu blómum og lagt verður af stað frá afleggjaranum upp á Hrísahöfða. Ferðin hefst klukkan 16:00 og er fólk kvatt til að klæða sig eftir veðri. Leiðsögumaður verður Þórir Haraldsson líffræðingur og kennari. Fólk er hvatt til að nota þetta tækifæri til að fræðast um plönturíkið og er áhugafólki einnig bent á vefsíðuna www.floraislands.is.

 

mynd Hörður Kristinsson.