Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2015/2016

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2015/2016 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 605, 3. júlí 2015

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:

Grundarfjarðarbær (Grundarfjörður)
Vesturbyggð (Patreksfjörður)

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1043/2015 í Stjórnartíðindum

Árborg (Stokkseyri, Eyrarbakki)
Garður
Vogar
Vesturbyggð (Brjánslækur/Barðaströnd)
Ísafjarðarbær (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur, Ísafjörður)
Strandabyggð (Hólmavík)
Húnaþing vestra (Hvammstangi)
Blönduósbær (Blönduós)
Sveitarfélagið Skagaströnd
Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
Dalvíkurbyggð (Dalvík, Árskógssandur, Hauganes)
Breiðdalshreppur (Breiðdalsvík)

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu ásamt samningi við vinnsluaðila, á eyðublöðum sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (www.fiskistofa.is ), og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar.

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samingur um vinnslu fylgi.

Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2015.

Fiskistofa, 20. nóvember 2015.