40 ára afmæli Dalbæjar og nýstofnuð hollvinasamtök

40 ára afmæli Dalbæjar og nýstofnuð hollvinasamtök

Í gær sunnudaginn 13. október var haldið upp á 40 ára afmæli Dalbæjar en heimilið tók til starfa þann 1. júlí 1979 þrátt fyrir að vera ekki formlega vígt fyrr en 12. janúar 1980. Þessum áfanga var því fagnað með hátíðarhöldum fyrir heimilisfólk, starfsmenn og góða gesti. Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, formaður Byggðaráðs afhenti við þetta tækifæri blómvönd fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.

Við þetta tilefni voru svo kynnt til sögunnar Hollvinasamtök Dalbæjar en tilgangur þessara nýju samtaka er að styðja við Dvalarheimilið Dalbæ með framlögum til tækjakaupa og ýmiss konar búnaðar. Framlögum í félagið er safnað með félagsgjöldum félagsmanna og er árgjaldið 5.000 kr.

Með stofnun samtakanna er vonast til að hægt verði að stuðla að bættari aðstöðu bæði heimilisfólk og starfsfólks. Vonast er til að sem flestir sjái sér kost á gerast félagar í samtökunum svo að sem flestir geti hjálpast að við að ná settu markmiði. Margar hendur vinna létt verk og margt smátt gerir eitt stórt.

Í stjórn samtakanna eru:

Rúna Kristín Sigurðardóttir - formaður
Júlíus Júlíusson - varaformaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir - ritari
Kristín Svava Stefánsdóttir - gjaldkeri

Aðrir meðstjórnendur eru:
Arnar Símonarson
Eva Björg Guðmundsdóttir
Helga Mattína Björnsdóttir
séra Oddur Bjarni Þorkelsson
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson

Skráning í félagið er á vefsíðu sem stofnuð var í tilefni afmælis Dalbæjar og stofnun Hollvinasamtakanna, www.dalbaer.is