Sveitarstjórn

388. fundur 17. mars 2026 kl. 16:15 - 17:23 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
  • Helgi Einarsson aðalmaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Engar athugasemdir við fundarboð eða fundarboðun.

1.Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1175; frá 19.02.2026

Málsnúmer 2602007FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1176; frá 26.02.2026

Málsnúmer 2602009FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum.
Liður 1 er sér liður á dagskrá: mál 202501059.
Liður 3 er sér liður á dagskrá; mál 202602128.
Liður 4 er sér liður á dagskrá; mál 202507003.
Liður 5 er sér liður á dagskrá; mál 202602106.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3.Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1177; frá 12.03.2026

Málsnúmer 2603006FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 22 liðum.
Liður 3 er sér liður á dagskrá; mál 202602059.
Liður 4 er sér liður á dagskrá; mál 202602117.
Liður 5 er sér liður á dagskrá; mál 202603009.
Liður 6 er sér liður á dagskrá; mál 202603027.
Liður 8 er sér liður á dagskrá; mal 202304074.
Liður 9 er sér liður á dagskrá; mál 202501059.
Liður 10 er sér liður á dagskrá; mál 202512012.
Liður 11 er sér liður á dagskrá; mál 202509130.
Liður 12 er sér liður á dagskrá; mál 202603065.
Liður 14 er sér liður á dagskrá; mál 202603062.
Liður 17 er sér liður á dagskrá; mál 202603008.
Liður 18 er sér liður á dagskrá; mál 202602144.

Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

4.Félagsmálaráð - 294; frá 10.03.2026

Málsnúmer 2602010FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

5.Fræðsluráð - 314; frá 11.03.2026

Málsnúmer 2603004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 12 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

6.Íþrótta- og æskulýðsráð - 185; frá 03.03.2026

Málsnúmer 2602011FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 11 liðum.
Liður 5 mál 202509144; fór inn í byggðaráð og er þar.
Liður 7 er sér liður á dagskrá; mál 202601078.
Liður 8 er sér liður á dagskrá; mál 202601080.
Til máls tóku:
Kristinn Bogi Antonsson, um lið 6. um Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar, mál 202401136.

Forseti sveitarstjórnar, sem leggur til að þessi liður verði sér mál á dagskrá þar sem tillaga Kristins Boga að bókun verði til umfjöllunar og afgreiðslu.

Fleiri tóku ekki til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar og mál 202401136 sett sem sér liður á dagskrá.

7.Menningarráð - 113; frá 27.02.2026

Málsnúmer 2602008FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 17 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

8.Skipulagsráð - 44; frá 03.03.2026

Málsnúmer 2603002FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

9.Skipulagsráð - 45; frá 11.03.2026

Málsnúmer 2603005FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 15 liðum.
Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202302116.
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202603054.
Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202402088.
Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202303040.
Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202501016.
Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202501017.
Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202511032.
Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202401038.
Liður 11 er sér mál á dagskrá; mál 202603055.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

10.Umhverfis- og dreifbýlisráð - 41; frá 13.03.2026

Málsnúmer 2603003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum.
Liður 4 er sér liður á dagskrá; mál 202602141.
Liður 7 er sér liður á dagskrá; mál 202408030.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

11.Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 154; frá 04.03.2026

Málsnúmer 2603001FVakta málsnúmer

Fundrgerðin er í 10 liðum.
Liður 7 er sér liður á dagskrá; mál 202602149.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

12.Frá 1176. fundi byggðaráðs þann 26.02.2026 og 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Vatnstankur Upsa - Nýr tankur

Málsnúmer 202501059Vakta málsnúmer

a) Tilboð

Á 1176. fundi byggðaráðs þann 26. febrúar sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
"Á 1175. fundi byggðaráðs þann 19. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
Þann 8. janúar sl. voru útboðsgögn vegna útboðs á nýjum Vatnstanki í Upsa tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Útboðsgögnin voru samþykkt og samþykkt að auglýsa útboðið.
Með fundarboði byggðaráðs var meðfylgjandi opnunarskýrsla vegna ofangreinds útboðs, dagsett þann 13. febrúar sl., þar sem fram kemur að 3 tilboð bárust í verkið. Eftir er að fara yfir útboðin.
Niðurstaða : Lagt fram til kynningar.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi:
Skýrsla Faglausna varðandi yfirferð innsendra tilboða, dagsett þann 23.02.2026.
Fram kemur að þegar litið er til gildra tilboða þá er Tréverk með lægsta boð kr. 125.790.560,- og því lagt til að gengið verði til samninga við það.
Fundargerð vinnuhóps um vatnstank, dagsett þann 23.02.2026, þar sem fram kemur að vinnuhópurinn er sammála tillögu Faglausna, umsjónaraðila með útboðinu, að gengið verði til samninga við Tréverk ehf. um byggingu vatnstanks við Upsa.
Niðurstaða : a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu um að gengið verði til samninga við Tréverk ehf. um byggingu vatnstanks við Upsa, með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar þann 17. mars nk.

b) Viðauki
Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1176. fundi byggðaráðs þann 26. febrúar sl. var sveitarstjóra falið að leggja fyrir viðaukabeiðni vegna byggingu vatnstanks við Upsa í samræmi við niðurstöðu útboðs. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni, dagsett þann 11. mars 2026, að upphæð kr. 35.790.560 á lið 44200-11606 miðað við að verklok verði á árinu 2026.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 10 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að liður 44200-11606 hækki um kr. 35.790.560. Byggðaráð leggur til að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Til máls tóku:
Kristinn Bogi Antonsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:25.

Fleiri tóku ekki til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu og tillögu byggðaráðs um að gengið verð til samninga við Tréverk ehf. um byggingu vatnstanks við Upsa. Kristinn Bogi Antonsson tekur ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og fyrirliggjandi tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 10 að upphæð kr. 35.790.560 á lið 44200-11606. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Kristinn Bogi Antonsson tekur ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis.

13.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026: Samningur um sérfræðiþjónustu á sviði mannauðsmála - viðaukabeiðni.

Málsnúmer 202603065Vakta málsnúmer

Kristinn Bogi Antonsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:26.

Á 1177.. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá sveitarstjóra, dagsett þann 11. mars 2026, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 6.166.321 til að gera 3ja mánaðar samning við Elsu Heimisdóttur vegna sérfræðiaðstoðar í mannauðsmálum.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 11 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 6.166.321 án vsk á lið 21600-4391.
Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 11 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 6.166.321 á lið 21600-4391.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

14.Frá 1176. fundi byggðaráðs þann 26.02.2026; Víkingurinn 2026

Málsnúmer 202602128Vakta málsnúmer

Á 1176. fundi byggðaráðs þann 26. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Félagi kraftamanna, dagsett þann 23. febrúar sl., þar sem óskað er eftir stuðningi við keppni sterkustu manna landsins, Víkingurinn 2026, sem fer fram dagana 24.-26. júli nk.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi um styrk frá sveitarfélaginu."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og hafnar erindinu.

15.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602059Vakta málsnúmer

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 113. fundi menningarráðs þann 27. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
Tekin fyrir umsókn frá Kvenfélaginu Tilraun. Þau sækja um 6.500.000 kr. styrk í viðhald á Tunguseli sem er við Tungurétt í Svarfaðardal, hús sem er notað meðal annars fyrir kaffisölu og salernisskúr.
Niðurstaða : Menningarráð hafnar erindinu með þremur atkvæðum þar sem að upphæð er of há fyrir sjóðinn og vísar málinu inn í Byggðaráð þar sem að Menningarráð telur verkefnið þarft.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi.
Byggðaráð bendir Kvenfélaginu Tilraun á að árlega auglýsir sveitarfélagið eftir erindum frá íbúum og félagasamtökum vegna vinnu við fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar. Umsóknarfrestur verður líklega um miðjan ágúst 2026 vegna fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og hafnar erindinu.

16.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602117Vakta málsnúmer

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 113. fundi menningarráðs þann 27. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
Tekin er fyrir umsókn frá Árna Daníel Júlíusarsyni, þar sem hann sækir um 400.000 kr. styrk til að mæta kostnaði við verkefnið Eyðibyggðir miðalda.
Niðurstaða : Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum að hafna erindinu þar sem umsókn samræmist ekki reglum sjóðsins. Menningarráði þykir verkefnið áhugvert og vísar því inn í Byggðaráð Dalvíkurbyggðar.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi þar sem, samkvæmt umsókninni, er um að ræða verkefni á vegum Fornleifastofnunar Íslands, sem er sjálfeignarstofnun. Í reglum Menningar- og
viðurkenningarsjóðs er m.a. skilyrt að umsækjandi sé með lögheimili í Dalvíkurbyggð."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og hafnar erindinu.

17.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Styrktarbeiðni

Málsnúmer 202603062Vakta málsnúmer

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Slysavarnardeildinni Dalvík, dagsett þann 6. mars 2026, þar sem óskað er eftir styrk frá Dalvíkurbyggð að upphæð kr. 220.000 - 250.000 þar sem fyrirhugað er að fá veltibíl frá Slysavarnarfélaginu
Landsbjörg á Sjómannadaginn 7. júní nk. og hafa hann við safnaðarheimilið á meðan Sjómannadagskaffið er haldið.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna erindinu.
Byggðaráð bendir Slysavarnarfélaginu á að árlega er auglýst eftir erindum frá íbúum og félagasamtökum við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar. Umsóknarfrestur verður líklega um miðjan ágúst 2026 vegna fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og hafnar erindinu.

18.Frá 185. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 03.03.2026; Gull- silfur- og bronsmerki Dalvíkurbyggðar fyrir starf í þágu íþrótta

Málsnúmer 202601078Vakta málsnúmer

Á 185. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Íþróttafulltrúi leggur til upptöku á heiðursviðurkenningum fyrir störf í þágu íþrótta á vegum sveitarfélagsins.
Niðurstaða : Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fjórum atkvæðum gull-, silfur- og bronsmerki Dalvíkurbyggðar í þágu íþrótta í sveitarfélaginu."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu íþrótta- og æskulýðsráðs og fyrirliggjandi tillögu að reglum um heiðursviðurkenningar fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar í Dalvíkurbyggð.

19.Frá 185. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 03.03.2026; Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar - reglur og uppfærsla þeirra

Málsnúmer 202601080Vakta málsnúmer

Á 185. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Íþróttafulltrúi leggur til uppfærslu á reglum um kjör íþróttamanns Dalvíkurbyggðar. Megin breytingin er tímasetning kosningar og verðlaunahátíðarinnar sjálfrar.
Niðurstaða : Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fjórum atkvæðum uppfærðar reglur um Íþróttamann Dalvíkurbyggðar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu íþrótta- og æskulýðsráðs og fyrirliggjandi tillögu að uppfærðum reglum um kjör Íþróttamanns Dalvíkurbyggðar.

20.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Framlenging á samningi um skólaakstur 2026 - 2027

Málsnúmer 202603009Vakta málsnúmer

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 314. fundi fræðsluráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
Tekið fyrir minnisblað frá Sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs dags. 04.03.2026
Niðurstaða : Fræðsluráð gerir ekki athugasemd við minnisblað frá Sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs og vísar málinu til Byggðaráðs.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðsluráðs um að nýta seinni heimild til framlengingu á samningi við Ævar og Bóas ehf. um eitt ár vegna skólaaksturs nemenda í Dalvíkurskóla og Árskógarskóla.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og samþykkir framlengingu á samningi við Ævar og Bóas ehf. um eitt ár.

21.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Ósk um framlengingu á verksamningi um hádegisverð í leik - og grunnskóla skólaárið 2026 - 2027

Málsnúmer 202603027Vakta málsnúmer

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
H"elgi Einarsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis kl. 14:39 og varaformaður, Freyr Antonsson tók við fundarstjórn.
Á 314. fundi fræðsluráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
Tekið fyrir minnisblað frá Sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs dags. 04.03.2026
Niðurstaða : Fræðsluráð gerir ekki athugasemd við minnisblað og vísar málinu inn í Byggðaráð Dalvíkurbyggðar.
Gísli vék af fundi kl. 14:41.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðsluráðs um að nýta seinni heimild til að framlengja samningi við Blágrýti ehf. um eitt ár vegna skólamáltíða í leiks- og grunnskólum Dalvíkurbyggðar.
Viðbótarsamningur sem gerður var við Leikskólann Krílakot fellur þar undir, þ.e. eitt skólaár 2026-2027.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Til máls tók:

Helgi Einarsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínum hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:32.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og framlengingu á samningi við Blágrýti ehf. um eitt ár. Helgi Einarsson tekur ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis.

22.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Samningur um Rima og Sundlaug

Málsnúmer 202304074Vakta málsnúmer

Helgi Einarsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:34.
Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 373. fundi sveitarstjórnar þann 5. nóvember 2024 var samþykkt samhljóðað viðauki við leigusamningi á milli Dalvíkurbyggðar og Í Tröllahöndum vegna leigu á Rimum, Sundskála Svarfdæla og tjaldsvæðinu við Rima til og með 31. október 2025.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að leigusamningi um ofangreint á milli sömu aðila þar sem leigutíminn er til og með 31.10.2028.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum meðfylgjandi samningsdrög fyrir sitt leiti og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdu upplýsingar um að Kristján Hjartarson, fyrir hönd Í Tröllahöndum ehf., gerir ekki athugasemdir við samningsdrögin.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og fyrirliggjandi tillögu að uppfærðum leigusamningi á milli Dalvíkurbyggðar og Í Tröllahöndum ehf. um leigu á félagsheimilinu Rimar, Sundskála Svarfdæla og tjaldsvæði.

23.Frá 41. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 13.03.2026; Frá Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum 2026-2029

Málsnúmer 202602141Vakta málsnúmer

Á 41. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 13. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Fyrir fundinum lá minnisblað Deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar þar sem farið var yfir stöðu á útboði snjómoksturs og hálkuvarna 2026-2029. Búið er að semja við ráðgjafa vegna vinnu við útboðið og stefnt á auglýsingu í apríl.
Niðurstaða : Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir framlagða tillögu deildarstjóra um að útboð snjómoksturs og hálkuvarna verði tvískipt, þannig að þjónustan fyrir Dalvík verði boðin út sérstaklega og þjónustan fyrir Árskógssand og Hauganes
hins vegar. Þetta fyrirkomulag hefur verið á þjónustunni undanfarin ár og gefist vel.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfis- og dreifbýlisráðs og samþykkir að útboð snjómoksturs og hálkuvarna verði tvískipt, þannig að þjónustan fyrir Dalvík verði boðin út sérstaklega og þjónustan fyrir Árskógssand og Hauganes
hins vegar. Snjómokstur og hálkuvarnir í framdölum Svarfaðar- og Skíðadals verði áfram utan útboðs og sama verklag verði áfram viðhaft - þ.e. að sveitarfélagið gangi inn í samning Vegagerðarinnar.

24.Frá 41. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 13.03.2026; Fjallgirðing Upsir (Svæði) og Upsir (Hóll)

Málsnúmer 202408030Vakta málsnúmer

Á 368. fundi sveitarstjórnar þann 16. apríl 2024 var eftirfarandi bókað:
"Á 19. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 5. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
Farið yfir málefni fjallgirðinga og viðhaldi á þeim. Niðurstaða:Umhverfis- og dreifbýlisráð leggur til að farið verði í endurnýjun fjallgirðinganna milli Upsa, Hóls og Svæðis auk viðhalds á öðrum fjallgirðingum í landi sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Niðurstaða : Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu umhverfis- og dreifbýlisráðs um endurnýjun fjallgirðinga. Upphæðin verði tekin af lið 13210-4396 sem rúmast á fjárhagsáætlun ársins 2024."


Á 41. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 13. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Árið 2024 var gerður verksamningur við GÞ verktaka vegna endurnýjunar og færslu á fjallgirðingunni við Upsir og Hól/Svæði. Í ljós hefur komið að tilfærsla á girðingunni er ekki fýsileg í ljósi krafna um fornleifaskráningu á fyrirhuguðu girðingarstæði.
Niðurstaða : Umhverfis- og dreifbýlisráð leggur til að samningi við GÞ verktaka verði rift á grundvelli breyttra forsenda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfis- og dreifbýlisráðs og þá tillögu að samningi við GÞ verktaka verði rift á grundvelli breyttra forsenda.

25.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Markaðs- og kynningarmál Dalvíkurbyggðar - áætlun

Málsnúmer 202509130Vakta málsnúmer

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1168. fundi byggðaráðs þann 27. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
Undir þessum lið koma á fund byggðaráðs Friðjón Árni Sigurvinsson, upplýsingafulltrúi, kl. 13:53.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi drög að markaðs- og kynningaráætlun Dalvíkurbyggðar sem var jafnframt hluti af fylgigögnum með starfs- og fjárhagsáætlun 2026.
Til umræðu ofangreint.
Friðjón Árni vék af fundi kl. 15:12.
Niðurstaða : Lagt fram til kynningar.
Til umræðu hvort byggðaráðs sé með einhverjar ábendingar / athugasemdir við áætlunina frá því fundi byggðaráðs í nóvember sl.
Friðjón vék af fundi 15:17.
Niðurstaða : Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi drög að markaðs- og kynningaráætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2026."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og meðfylgjandi tillögu að markaðs- og kynningaráætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2026.

26.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Tilboð í upplyftingu á Byggðarmerki.

Málsnúmer 202512012Vakta málsnúmer

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið koma á fund byggðaráðs Friðjón Árni Sigurvinsson, upplýsingafulltrúi kl. 15.05.
Á 386. fundi sveitarstjórnar þann 20. janúar sl. var samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum að ganga til samninga við Kríu hönnunarstofu um mörkun Dalvíkurbyggðar og uppfærslu á byggðamerki.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað Upplýsingafulltrúa þar sem kynnt er tillaga að upplyftingu á byggðamerki.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum meðfylgjandi tillögu að upplyftingu á byggðamerki Dalvíkurbyggðar og vísar því til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og fyrirliggjandi tillögu að mörkun og upplyftingu á byggðamerki Dalvíkurbyggðar.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að fela sveitarstjóra að sækja um endurskráningu byggðamerkisins hjá Hugverkastofunni.

27.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Fundarboð á hluthafafund Leigufélagsins Bríetar ehf

Málsnúmer 202603008Vakta málsnúmer

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Sveitarstjóri gerði grein fyrir hlutahafafundi Leigufélagsins Bríet ehf. sem hún sat fyrir hönd Dalvíkurbyggðar fimmtudaginn 5. mars sl. Til umfjöllunar staðfesting skipting hlutafjár skv. skiptingaráætun sem hefur verið birt í Lögbirtingarblaðinu vegna Leigufélags Grindavíkur ehf.
Með fundarboði fylgdi m.a.:
Uppfærð Samþykkt fyrir Leigufélagið Bríet ehf.
Skiptingaráætlun dagsett 30.06.2025 og stofnun Leigufélags Grindavíkur ehf.
Fundargerð Leigufélagsins Bríet ehf. frá 05.03.2026.
Í fundargerð kemur m.a. fram að eftir umræður var skipting Leigufélagsins Bríetar ehf. og stofnun Leigufélags Grindavíkur ehf. borin undir fundarmenn og voru þau staðfest með öllum atkvæðum
Samkvæmt skiptingaráætlun er hlutdeild Dalvíkurbyggðar í félaginu 2,96%,
Niðurstaða : Byggðaráð gerir ekki athugaemdir við meðfylgjandi og ofangreind gögn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og gerir ekki athugasemdir við meðfylgjandi gögn.

28.Frá 1176. fundi byggðaráðs þann 26.02.2026; Skráning lögheimilis í frístundabyggð -

Málsnúmer 202507003Vakta málsnúmer

Á 1176. fundi byggðaráðs þann 26. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 20. febrúar sl., þar sem vísað er til fundar / vinnustofu um ofangreint mál í desember 2025.
Fram kemur að á fundinum var óskað eftir tillögu frá Sambandinu að bókun sem sveitarstjórnar geta þá eftir atvikum ákveðið að taka upp hjá sér og er hún meðfylgjandi, ásamt svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn þingsmanns um skráningu lögheimils og stöðuyfirliti málsins í febrúar 2026.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum eftirfarandi bókun:
"Á undanförnum árum hefur fjölgað verulega þeim sem skrá lögheimili sitt í sveitarfélagi án tilgreinds heimilisfangs, oft vegna búsetu í frístundahúsnæði. Þróunin hefur skapað óvissu í stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélaga. Byggðaráð
skorar því á dómsmálaráðherra að setja á fót hið fyrsta spretthóp ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga til að endurskoða lög um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018 svo tryggt sé að skipulagsvald sveitarfélaga sé virt í samræmi við vilja sveitarfélaga landsins."
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu byggðaráðs að bókun og gerir hana að sinni.

29.Frá 1176. fundi byggðaráðs þann 26.02.2026; Hluthafafundur í Greiðri leið ehf.

Málsnúmer 202602106Vakta málsnúmer

Á 1176. fundi byggðaráðs þann 26. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekinn fyrir rafpóstur frá Greiðri leið ehf., dagsettur þann 18. febrúar sl, þar sem boðað er til hluthafafundar 27. febrúar nl. kl. 13.00 í gegnum TEAMS.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að sitja fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs um að fela sveitarstjóra að sitja fund Greiðrar leiðar ehf. þann 27. febrúar sl.

30.Frá 154. fundi veitu- og hafnaráðs þann 04.03.2026; Aðalfundur Samorku 2026

Málsnúmer 202602149Vakta málsnúmer

Á 154. fundi veitu- og hafnaráðs þann 4. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Fundarboð á aðalfund Samorku þann 25.mars nk.
Niðurstaða : Samþykkt með fjórum atkvæðum að Gunnar Kristinn sitji fundinn f.h. Dalvíkurbyggðar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs.

31.Frá 45. fundi skipulagsráðs þann 11.03.2026; Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045.

Málsnúmer 202302116Vakta málsnúmer

Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Lögð fram tillaga að nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045, unnin af Yrki arkitektum ehf.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að framlögð tillaga verði auglýst skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofnagreinda tillögu skipulagsráðs og samþykkir að framlögð og meðfylgjandi tillaga verði auglýst skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

32.Frá 45. fundi skipulagsráðs þann 11.03.2026; Hinriksmýri Árskógssandi - umsókn um skipulagsbreytingar

Málsnúmer 202603054Vakta málsnúmer

Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars 2026 var eftirfarandi bókað:
"Á fundi sveitarstjórnar þann 15.apríl 2025 var samþykkt að gerð yrði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008- 2020 vegna áforma um uppbygginu í tengslum við Bjórböðin (Ægisgötu 31) á Árskógssandi. Þá var jafnframt samþykkt að lóðum nr. 29 við Ægisgötu og 26 við Öldugötu yrði úthlutað til lóðarhafa Ægisgötu 31 án undangenginnar auglýsingar að loknum skipulagsbreytingum.
Nú er lögð fram skipulagslýsing fyrir deiliskipulag svæðisins, unnin af Snæ arkitektum og ASK arkitektum. í lýsingunni er gerð grein fyrir fyrirhugaðri uppbyggingu á svæðinu, sem felur m.a. í sér að framkvæmdasvæði kemur til með að ná yfir hluta af lóð nr. 37 við Öldugötu og óbyggt land Dalvíkurbyggðar, til viðbótar við lóðir nr. 29 við Ægisgötu og 26 við Öldugötu.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða skipulagslýsingu og að lýsingin verði kynnt skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur skipulagsráð til við sveitarstjórn að hún samþykki að lóð nr. 37 við Öldugötu verði úthlutað til umsækjanda án undangenginnar auglýsingar, ásamt óútvísuðu landi Dalvíkurbyggðar skv. framlögðum gögnum, að loknum skipulagsbreytingum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og samþykkir framlagða skipulagslýsingu og að lýsingin verði kynnt skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að lóð nr. 37 við Öldugötu verði úthlutað til umsækjanda án undangenginnar auglýsingar, ásamt óútvísuðu landi Dalvíkurbyggðar skv. framlögðum gögnum, að loknum skipulagsbreytingum.

33.Frá 45. fundi skipulagsráðs þann 11.03.2026; Árskógssandur - breyting á aðalskipulagi vegna nýrrar íbúðabyggðar

Málsnúmer 202402088Vakta málsnúmer

Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna nýrrar íbúðarbyggðar á Árskógssandi lauk þann 2.mars sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá veitum Dalvíkurbyggðar, Rarik, Minjastofnun Íslands, Náttúrurverndarstofnun, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Vegagerðinni.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeirri breytingu eftir auglýsingu að gerð verði grein fyrir áhrifum á vistgerðir innan skipulagssvæðisins í greinargerð skipulagstillögunnar til samræmis við umsögn Náttúruverndarstofnunar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og samþykkir framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeirri breytingu eftir auglýsingu að gerð verði grein fyrir áhrifum á vistgerðir innan skipulagssvæðisins í greinargerð skipulagstillögunnar til samræmis við umsögn Náttúruverndarstofnunar.

34.Frá 45. fundi skipulagsráðs þann 11.03.2026; Árskógssandur - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202303040Vakta málsnúmer

Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Auglýsingu tillögu að deiliskipulagi nýrrar íbúðarbyggðar á Árskógssandi lauk þann 2.mars sl.
Ein athugasemd barst. Umsagnir bárust frá veitum Dalvíkurbyggðar, Rarik, Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Vegagerðinni.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi íbúðarsvæðis á Árskógssandi skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með breytingum eftir auglýsingu til samræmis við umsagnir Vegagerðarinnar, Rarik, Minjastofnunar Íslands og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.
Skipulagsráð samþykkir að gata sem merkt er A-gata á skipulagsuppdrætti fái heitið Sólvallagata og gata sem merkt er B-gata fái heitið Árgata.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi íbúðarsvæðis á Árskógssandi skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með breytingum eftir auglýsingu til samræmis við umsagnir Vegagerðarinnar, Rarik, Minjastofnunar Íslands og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.

35.Frá 45. fundi skipulagsráðs þann 11.03.2026; Árskógsvirkjun Þorvaldsdal - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 202501016Vakta málsnúmer

Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um vatnsaflsvirkjun í Þorvaldsdal lauk þann 24.febrúar sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá veitum Dalvíkurbyggðar, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun Íslands, Landsneti og Fiskistofu.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og samþykkir framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

36.Frá 45. fundi skipulagsráðs þann 11.03.2026; Árskógsvirkjun Þorvaldsdal - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202501017Vakta málsnúmer

Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Auglýsingu tillögu að deiliskipulagi fyrir Árskógsvirkjun í Þorvaldsdal lauk þann 24.febrúar sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Veðurstofunni, Laxós ehf., veitum Dalvíkurbyggðar, Ferðafélagi Svarfdæla, Fiskistofu, Landsneti, Minjastofnun Íslands, landeigendum á Brattavöllum, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Náttúrufræðistofnun, Vegagerðinni og Náttúruverndarstofnun.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

37.Frá 45. fundi skipulagsráðs þann 11.03.2026; Athafnasvæði í landi Ytri Haga - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202511032Vakta málsnúmer

Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Kynningu tillögu á vinnslustigi að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði í landi Ytri Haga lauk þann 10.febrúar sl. Engar athugasemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Landsneti, Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Rarik, Náttúruverndarstofnun, veitum Dalvíkurbyggðar og Mílu.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að framlögð tillaga að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í landi Ytri Haga verði auglýst skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með lagfæringum til samræmis við umsögn
Vegagerðarinnar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og samþykkir að framlögð tillaga að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í landi Ytri Haga verði auglýst skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með lagfæringum til samræmis við umsögn.

38.Frá 45. fundi skipulagsráðs þann 11.03.2026; Skáldalækur ytri - umsókn um deiliskipulag fyrir frístundalóðir

Málsnúmer 202401038Vakta málsnúmer

Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Auglýsingu tillögu að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar i landi Skáldalækjar ytri lauk þann 23.nóvember sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, slökkviliði Dalvíkur, Rarik, Mílu og Vegagerðinni.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Skáldalækjar ytri skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með eftirfarandi breytingum eftir auglýsingu:
- götuheitinu Skáldalækjartröð og lóðanúmerum verði bætt inn á skipulagsuppdrátt.
- útlitsteikningar í stað byggingarnefndarteikninga skulu lagðar fyrir skipulagsráð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Skáldalækjar ytri skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með eftirfarandi breytingum eftir auglýsingu:
- götuheitinu Skáldalækjartröð og lóðanúmerum verði bætt inn á skipulagsuppdrátt.
- útlitsteikningar í stað byggingarnefndarteikninga skulu lagðar fyrir skipulagsráð.

39.Frá 45. fundi skipulagsráðs þann 11.03.2026; Snocrossbraut í Böggvisstaðafjalli

Málsnúmer 202603055Vakta málsnúmer

Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Erindi dagsett 5.mars 2026 þar sem Freyr Antonsson f.h. Miðgarðs akstursíþróttafélags sækir um leyfi til nýtingar æfingabrautar fyrir snjósleða neðan við Brekkusel.
Niðurstaða : Skipulagsráð samþykkir erindið. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Til máls tók:

Freyr Antonsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:49.
Monika Margrét Stefánsdóttir, 1. varaforseti, tók við fundarstjórn.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulagsráðs um heimild til Miðgarðs að nýta æfingabraut fyrir snjóðsleða neðan við Brekkusel.
Freyr Antonsson tekur ekki þátt í umfjöllun og atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

40.Frá 1177. fundi byggðaráðs þann 12.03.2026; Ósk um tilnefningar í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Eyjafjörð

Málsnúmer 202602144Vakta málsnúmer

Freyr Antonsson, forseti sveitarstjórnar, kom inn á fundinn að nýju kl. 16:51 og tók við fundarstjórn.

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, dagsett þann 25. febrúar 2026, þar sem ráðuneytið óskar eftir sameiginlegri tilnefningu Fjallabyggðar, Dalvíkurbyggðar, Hörgársveitar, Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Svalbarðsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Eyjafjörð. Óskað er eftirtilnefningu þriggja aðalfulltrúa og þriggja varafulltrúa.
Í lögum nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða er kveðið á um að þegar stefna um skipulag haf- og strandsvæða kveður á um gerð strandsvæðisskipulags á tilteknu svæði skuli ráðherra skipa eitt svæðisráð fyrir hvert slíkt strandsvæði. Svæðisráð hefur það hlutverk að vinna að tillögu að strandsvæðisskipulagi fyrir viðkomandi svæði eða endurskoðun þess. Ráðherra skipar átta manna svæðisráð til að annast strandsvæðisskipulag á tilteknu svæði.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fundi sveitarstjóra á svæðinu varðandi tilnefningu fulltrúa sveitarfélaga í ráðið.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að Helgi Einarsson verði einn að þremur aðalfulltrúum í ráðinu."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu byggðaráðs um að tilnefna Helga Einarsson sem aðalfulltrúa í svæðisráð um strandssvæðisskipulag.

41.Ákvörðun um kjördeildir og kjörstaði v. sveitarstjórnarkosninga 2026

Málsnúmer 202603082Vakta málsnúmer

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi eftirfarandi tillaga:
Ákvörðun sveitarstjórnar um fjölda kjördeilda og kjörstaði vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí nk., sbr. 11. gr. III. kafla kosningalaga nr. 112 frá 25. júní 2021 og sbr. 78 gr. XIII. kafla sömu laga, með síðari breytingum.
Sbr. 11. og 78. gr. kosningalaga nr. 112 frá 25. júní 2021 með síðari breytingum samþykkir sveitarstjórn eina kjördeild í Dalvíkurbyggð og verður hún í Dalvíkurskóla, líkt og verið hefur undanfarnar kosningar.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu um eina kjördeild í Dalvíkurbyggð og að hún verði í Dalvíkurskóla vegna kosninga til sveitarstjórnar 16. mai nk.

42.Kosningar skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar í ráð og nefndir

Málsnúmer 202603076Vakta málsnúmer

a) Fjölskylduráð (áður Félagsmálaráð, Fræðsluráð og Íþrótta- og æskulýðsráð):

Til máls tóku:
Freyr Antonsson, sem leggur fram eftirfarandi tillögu um aðal- og varamenn:
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir, formaður
Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon varamaður
Silja Pálsdóttir, varamaður.

Helgi Einarsson, sem leggur til eftirfarandi aðal- og varamenn:
Gunnar Kristinn Guðmundsson, varaformaður
Snævar Örn Ólafsson, aðalmaður
Helgi Einarsson, varamaður.
Emil Júlíus Einarsson, varamaður.

Monika Margrét Stefánsdóttir, sem leggur fram eftirfarandi tillögu um aðal- og varamenn:
Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson varamaður


Fleiri tóku ekki til máls.

b) Framkvæmdaráð (áður Umhverfis- og dreifbýlisráð og Skiplagsráð):

Til máls tóku:
Freyr Antonsson, sem leggur fram eftirfarandi tillögu um aðal- og varamenn:
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon varamaður
Bessi Ragúels Víðisson varamaður


Helgi Einarsson, sem leggur til eftirfarandi aðal-og varamenn:
Katrín Sif Ingvardóttir, formaður
Emil Júlíus Einarsson, aðalmaður
Helgi Einarsson, varamaður
Friðjón Árni Sigurvinsson, varamaður.

Monika Margrét Stefánsdóttir, sem leggur til eftirfarandi aðal- og varamenn:
Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Eiður Smári Árnason varamaður


Fleiri tóku ekki til máls.

c) Veitu- og hafnaráð
Til máls tóku:
Helgi Einarsson sem leggur til að Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson taki sæti Gunnars Kristins Guðmundssonar sem varaformanns og Gunnar Kristinn taki sæti Þorvalds Eyfjörðs sem varamaður.




a) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því viðkomandi rétt kjörnir aðal- og varamenn í Fjölskylduráð.

Aðalmenn:

Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Gunnar Kristinn Guðmundsson, varaformaður
Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Snævar Örn Ólafsson, aðalmaður.

Varamenn:
Benedikt Snær Magnússon varamaður
Silja Pálsdóttir varamaður
Kristinn Bogi Antonsson varamaður
Helgi Einarsson, varamaður
Emil Júlíus Einarsson, varamaður.


b) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því viðkomandi rétt kjörnir aðal- og varamenn í Framkvæmdaráð.


Aðalmenn:
Katrín Sif Ingvarsdóttir, formaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Emil Júlíus Einarsson, aðalmaður
Júlíus Magnússon, aðalmaður

Varamenn:
Benedikt Snær Magnússon varamaður
Bessi Ragúels Víðisson varamaður
Eiður Smári Árnason varamaður
Helgi Einarsson, varamaður
Friðjón Árni Sigurvinsson, varamaður.

c) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Þorvaldur Eyfjörð og Gunnar Kristinn réttkjörnir sem varaformaður annars vegar og varamaður hins vegar.

43.Vinnuskóli Dalvíkurbyggðar - staða og framtíð

Málsnúmer 202401136Vakta málsnúmer

Á 185. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Umræður um fyrirkomulag vinnuskóla 2026.
Lagt fram til kynningar."
Til máls tóku:
Kristinn Bogi Antonsson, sem leggur til eftirfarandi tillögu:
"Lagt er til að auglýst verði nokkur almenn sumarstörf fyrir 18 ára og eldri hjá Eigna- og framkvæmdadeild sveitarfélagsins við umhirðu, viðhald og fegrun umhverfis í Dalvíkurbyggð. Með því verði lögð aukin áhersla á umhverfismál í sveitarfélaginu og einnig að sem flest ungt fólk eigi kost á atvinnu yfir sumartímann."

Freyr Antonsson, sem leggur til að ofangreind tillaga Kristins Boga verði vísað til umfjöllunar í Framkvæmdaráð.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögu forseta sveitarstjórnar að vísa tillögu Kristins Boga Antonssonar til umfjöllunar í Framkvæmdaráði.

Fundi slitið - kl. 17:23.

Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
  • Helgi Einarsson aðalmaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs