Kristinn Bogi Antonsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:26.
Á 1177.. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá sveitarstjóra, dagsett þann 11. mars 2026, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 6.166.321 til að gera 3ja mánaðar samning við Elsu Heimisdóttur vegna sérfræðiaðstoðar í mannauðsmálum.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 11 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 6.166.321 án vsk á lið 21600-4391.
Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.