Frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu; Ósk um tilnefningar í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Eyjafjörð

Málsnúmer 202602144

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1177. fundur - 12.03.2026

Tekið fyrir erindi frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, dagsett þann 25. febrúar 2026, þar sem ráðuneytið óskar eftir sameiginlegri tilnefningu Fjallabyggðar, Dalvíkurbyggðar, Hörgársveitar, Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Svalbarðsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Eyjafjörð. Óskað er eftir tilnefningu þriggja aðalfulltrúa og þriggja varafulltrúa.

Í lögum nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða er kveðið á um að þegar stefna um skipulag haf- og strandsvæða kveður á um gerð strandsvæðisskipulags á tilteknu svæði skuli ráðherra skipa eitt svæðisráð fyrir hvert slíkt strandsvæði. Svæðisráð hefur það hlutverk að vinna að tillögu að strandsvæðisskipulagi fyrir viðkomandi svæði eða endurskoðun þess. Ráðherra skipar átta manna svæðisráð til að annast strandsvæðisskipulag á tilteknu svæði.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fundi sveitarstjóra á svæðinu varðandi tilnefningu fulltrúa sveitarfélaga í ráðið.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að Helgi Einarsson verði einn að þremur aðalfulltrúum í ráðinu.

Sveitarstjórn - 388. fundur - 17.03.2026

Freyr Antonsson, forseti sveitarstjórnar, kom inn á fundinn að nýju kl. 16:51 og tók við fundarstjórn.

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, dagsett þann 25. febrúar 2026, þar sem ráðuneytið óskar eftir sameiginlegri tilnefningu Fjallabyggðar, Dalvíkurbyggðar, Hörgársveitar, Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Svalbarðsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Eyjafjörð. Óskað er eftirtilnefningu þriggja aðalfulltrúa og þriggja varafulltrúa.
Í lögum nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða er kveðið á um að þegar stefna um skipulag haf- og strandsvæða kveður á um gerð strandsvæðisskipulags á tilteknu svæði skuli ráðherra skipa eitt svæðisráð fyrir hvert slíkt strandsvæði. Svæðisráð hefur það hlutverk að vinna að tillögu að strandsvæðisskipulagi fyrir viðkomandi svæði eða endurskoðun þess. Ráðherra skipar átta manna svæðisráð til að annast strandsvæðisskipulag á tilteknu svæði.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fundi sveitarstjóra á svæðinu varðandi tilnefningu fulltrúa sveitarfélaga í ráðið.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að Helgi Einarsson verði einn að þremur aðalfulltrúum í ráðinu."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu byggðaráðs um að tilnefna Helga Einarsson sem aðalfulltrúa í svæðisráð um strandssvæðisskipulag.