Snocrossbraut í Böggvisstaðafjalli

Málsnúmer 202603055

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 45. fundur - 11.03.2026

Erindi dagsett 5.mars 2026 þar sem Freyr Antonsson f.h. Miðgarðs akstursíþróttafélags sækir um leyfi til nýtingar æfingabrautar fyrir snjósleða neðan við Brekkusel.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

Sveitarstjórn - 388. fundur - 17.03.2026

Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Erindi dagsett 5.mars 2026 þar sem Freyr Antonsson f.h. Miðgarðs akstursíþróttafélags sækir um leyfi til nýtingar æfingabrautar fyrir snjósleða neðan við Brekkusel.
Niðurstaða : Skipulagsráð samþykkir erindið. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Til máls tók:

Freyr Antonsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:49.
Monika Margrét Stefánsdóttir, 1. varaforseti, tók við fundarstjórn.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulagsráðs um heimild til Miðgarðs að nýta æfingabraut fyrir snjóðsleða neðan við Brekkusel.
Freyr Antonsson tekur ekki þátt í umfjöllun og atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.